Erlent

Úlfar í sauðargærum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/Getty Images

Ítalskar vændiskonur hyggjast ganga um í svarthvítum nunnuklæðum til að mótmæla þeim tilmælum ítalskra stjórnvalda að þær klæðist ekki hinum hefðbundna vinnufatnaði sínum.

Hafa borgarstjórar ýmissa stærri borga á Ítalíu tekið stefnu stjórnarinnar upp á sína arma og sett reglur um að vændiskonum leyfist ekki að ganga um klæddar sem vændiskonur, það er að segja í efnislitlum og söluhvetjandi klæðum. Liggur nú sekt við þessu sem borgarstjóri Flórens hyggst hækka í næsta mánuði. Með nunnuklæðunum ætla vændiskonurnar að valda ruglingi sem neyði borgarstjórana til að endurskoða reglur sínar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×