Frumvarp um orkumál á leið úr þingflokki á næstu dögum 5. febrúar 2008 13:46 Arnbjörg Sveinsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. MYND/GVA
Þingmenn stjórnarandstöðunnar kröfðust þess í dag að frumvarp Össurar Skarphéðinssonar um orkumál yrði lagt fram á þingi hið fyrsta. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir von á frumvarpinu á næstu dögum. Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, kvaddi sér hljóðs um störf þingsins og vísaði til starfa stjórnarskrárnefndar og umræðna um sameign þjóðarinnar á auðlindum landsins. Innti hann Arnbjörgu Sveinsdóttur, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, eftir því hvað liði skoðun á álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið og sömuleiðis frumvarpi um orkumál sem sæti fast inni í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Arnbjörg svaraði því til að álit mannréttindanefndar SÞ væri til skoðunar í sjávarútvegsráðuneytinu. Fram hefði komið að það væri mikilvægt að skoða málið frá öllum hliðum en litlar vísbendingar kæmu fram í álitinu um það hvað mannréttindanefndin ætlaðist til þess að Alþingi gerði. Málið væri mjög flókið. Um frumvarp iðnaðarráðherra sagði Arnbjörg að verið væri að skoðað það mjög vandlega í þingflokki sjálfstæðismanna og menn hefðu eðlilega mikinn áhuga á að kynna sér málið. Menn væru langt komnir og von væri á því úr þingflokknum í þessari eða næstu viku. Sérkennilegt að frumvarp virðist komið út í bæ en ekki á þing Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, spurði hvor til stæði að hafa þverpólitíkst samráð um kvótamálið. Sagði hann enn fremur sérkennilegt að frumvarp um orkumál væri ekki komið fram á Alþingi en það virtist engu að síður komið út í bæ. Kristinn H. Gunnarsson, þingflokksformaður Frjálslynda flokksins, sagði eðlilegt að spyrja um úrvinnslu mála á stjórnarheimilinu. Ágreiningur í þessu máli bættist ofan á fleiri ágreiningsefni stjórnarflokkanna, þar á meðal ráðningu héraðsdómara og stefnu í Evrópumálum. Spurði Kristinn hvort ríkisstjórninn myndi ráða við öll þess ágreiningsefni. Bjarni Harðarson, þingmaður Framsóknarflokksins, sagði orkumálafrumvarpið sitja fast í þingflokki Sjálfstæðisflokksins, en samt væri það komið út um allan bæ. Stjórnarandstöðuþingmenn fengju ekki aðgang að því en svo virtist sem Morgunblaðið ætti sér fulltrúa á þingflokksfundum Sjálfstæðisflokksins. Skoraði hann á sjálfstæðismenn að aflétta leyndinni af frumvarpinu. Ekkert óeðlilegt að frumvarp sé lengi til umfjöllunar Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, bað framsóknarmenn um að skýra sjónarmið sín í orkumálum og sömuleiðis sjávarútvegsmálum. Spurði hann hvort Framsóknarflokkurinn væri fallinn frá fyrri hugmyndum kvótakerfið og kallaði eftir hugmyndum frá Framsókn um það hvernig taka ætti á áliti mannréttindanefndar SÞ. Lúðvík sagði ekkert óeðlilegt að frumvarp um orkumál væri lengi til umfjöllunar hjá Sjálfstæðisflokknum. Hér væri um stórmál að ræða, eignarhald á auðlindum, og verið væri að taka á málum sem hefðu legið í láginni lengi. Þá benti hann stjórnarandstöðuþingmönnum á að mál væri ekki orðið að þingmáli fyrr en það hefði verið lagt fram á Alþingi.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira