Samstarf fasteignasala breytir ekki miklu fyrir Remax Andri Ólafsson skrifar 5. febrúar 2008 15:15
Þórarinn Arnar Sævarsson, einn eigenda Remax á Íslandi, segist ekki sjá hverju það muni breyta fyrir sitt fyrirtæki þó nokkrar af stærstu fasteignasölum Íslands hefji nánari samstarf. Vísir greindi frá því í gærkvöldi að hugmyndir þess efnis séu í farvatninu og að um tuttugu fasteignasölur séu nú í viðræðum um að hefja samstarf á svokölluðum klasagrundvelli. Með klasa er átt við hóp fyrirtækja sem eru í samvinnu og samkeppni og tengjast með þeirri sameiginlegu þekkingu sem þau búa að. „Þetta snýst fyrst og fremst um að auka þjónustu við kaupendur og seljendur í fasteignaviðskiptum," sagði Óskar Rúnar Harðarson löggiltur fasteignasali hjá fasteignasölunni Miklaborg, í samtali við Vísi í gærkvöld. "Ég sé ekki hverju þetta breytir fyrir Remax fyrr en menn sameina þessar fasteignasölur að fullu. Ég trúi því hinsvegar ekki fyrr en ég sé það," segir Þórarinn á Remax. Hann segir ólíklegt að tuttugu eigendur fasteignasala geti komið sér saman um svo víðtækt samstarf. "Það gæti hins vegar vel verið að þeir ætli að sameina söluskrár sínar eða kaupa sameiginlega auglýsingapláss í dagblöðum til þess að ná niður kostnaði," bætir Þórarinn við. Aðspurður hvort þessari fyrirhuguðu sameiningu sé beint að Remax segist Þórarinn ekki sjá með hvaða hætti slíkt samstarf ætti að geta haft áhrif á Remax.
Mest lesið Epstein-skjölin birt Erlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent Nemandi réðst á kennara á jólaskemmtun í Ingunnarskóla Innlent Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Innlent Talinn hafa komið til landsins til að stela Innlent Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Erlent Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Innlent Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Innlent Fleiri fréttir Langtímaleigan 23 þúsund krónum dýrari á ári Grenjandi rigning og hífandi rok á aðfangadag Reyndi að komast inn á lögreglustöð með fíkniefni Svona á að raða í uppþvottavélina „Verður vonandi til að styrkja íslensku einkareknu miðlana“ Talinn hafa komið til landsins til að stela Snorkstelpan snýr aftur eftir ágreining um höfundarrétt Framlög til einkarekinna fjölmiðla næstum tvöfaldast Meðferð við spilafíkn loks niðurgreidd af Sjúkratryggingum Kílómetragjaldið bitni helst á sparneytnum eldsneytisbílum Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Íslendingar lentu í alvarlegu slysi í Suður-Afríku Stóraukið fjármagn til Frú Ragnheiðar Standi ekki til að leggja niður Rás 2 þrátt fyrir boðaða heimild Bæta hjóla- og göngustíga í Breiðholti, Grafarholti og í Elliðaárdal Birkir vill þriðja til fjórða sæti hjá Samfylkingu Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Tímamótasamningur Sjúkratrygginga og SÁÁ Hætta á snjóflóðum til fjalla í Eyjafirði Hluti auglýsingatekna Rúv renni til einkarekinna fjölmiðla „Við látum alltaf taka okkur í bakaríið á endanum“ Götulokanir í miðborginni á Þorláksmessu og um áramót Logi kynnti aðgerðir í þágu fjölmiðla Einn handtekinn í aðgerð sérsveitar á Selfossi Bústaðakirkja opnuð vegna slyssins í Suður-Afríku Stormur gæti skollið á landið á aðfangadag Kílómetragjaldið verður að veruleika og hvassviðri um jólin Funduðu í 320 klukkustundir og afgreiddu 37 frumvörp Telja innbrot og umferðarlagabrot mesta vandamálið Katrín orðin stjórnarformaður Sjá meira