Undirbúa raðtilnefningu víkingaminja á skrá UNESCO 5. febrúar 2008 11:34 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og Peter-Harry Carstensen, forsætisráðherra Slésvíkur-Holstein, á blaðamannafundinum í gær.
Hafinn er undirbúningur að raðtilnefningu menningarminja frá tímum víkinga á heimsminjakrá UNESCO. Frá þessu greindu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra og tveir ráðherrar þýska sambandslandsins Slésvíkur-Holstein á blaðamannafundi í Kiel í gær. Í tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu kemur fram að auk Íslands og Slésvíkur-Holstein komi Danir og Svíar að verkefninu og þá verða stjórnvöld í Kanada og Noregi hugsanlega aðilar að ferlinu. Ísland verður ábyrgðaraðili verkefnisins en frumkvæði að raðtilnefningunni átti Slésvík-Holstein, sem í nokkur ár hefur unnið að því að tilnefna Haithabu og Danewirke á heimsminjaskrá. Ísland hefur unnið að verkefninu með Þjóðverjum um nokkurra ára skeið og á fundi ríkisstjórnarinnar 10. ágúst í fyrra var tekin ákvörðun um að Ísland yrði aðili að hinni alþjóðlegu tilnefningu. „Heimsminjanefnd Íslands hefur fengið það hlutverk að stýra verkefninu fyrir okkar hönd og vinnur hún nú að undirbúningi málþings og fundar á Íslandi í apríl þar sem kallaðir verða til fulltrúar þeirra landa, sem taka þátt í verkefninu," segir enn fremur í tilkynningu ráðuneytisins. Stefnt er að því að tilnefning vegna víkingaminja verði afhent UNESCO fyrir 1. febrúar eftir tvö ár.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira