Krefst gagna um matvælafrumvarp 13. júní 2008 11:08 Atli Gíslason.
Atli Gíslason, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og nefndarmaður í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd, krefst allra gagna sem varða samningaviðræður Íslands við ESB í sambandi við matvælafrumvarpið svokallaða, en í því er opnað fyrir innflutning á hráu kjöti til landsins. Alþingi frestaði afgreiðslu málsins á dögunum en Atli vill fá skýringar á því hvers vegna fallið hafi verið frá undanþágu sem Ísland hafði um innflutning á hráu kjöti. Atli hefur því sent Arnbjörgu Sveinsdóttur, formanni nefndarinnar, Einari K. Guðfinnsyni, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, utanríkisráðherra, bréf þar sem að krafist er allra gagna er varða samningaviðræður Íslands við ESB vegna frumvarpsins. „Eins og alþjóð er kunnugt að þá frestaði Alþingi nýverið afgreiðslu á málinu enda hafði ekki farið fram nein skoðun á því hverjar afleiðingarnar yrðu á því að leyfa innflutning á hráu kjöti fyrir heilsu manna og dýra sem og íslenska matvælaframleiðslu," segir í tilkynningu frá Atla. Atli segist allt frá því að málið kom til kasta sjávarútvegs- og lanbúnaðarnefndar hafa krafist fyrrnefndra gagna því að ekki hafi komið fram af hálfu stjórnvalda af hverju þau féllu frá undanþágu sem Ísland hafði um innflutning á hráu kjöti, að hans sögn. „Það er algjör frumforsenda í umfjöllun þessa máls að þessi gögn liggi fyrir og hneyksli að nefndarmönnum hafi ekki fyrir löngu verið afhent þau." Bréf Atla má lesa í heild sinni hér að neðan.
Mest lesið Kviðdómandi neitar að fylgja reglum um sönnunarbyrði Erlent Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Vilja að heimskortið sýni Afríku í réttum hlutföllum Erlent Segir Repúblikönum að tala meira um afrek hans Erlent Tveimur bjargað úr göngum níu dögum eftir skyndiflóðin Erlent Óttast að yfir áttatíu hafi farist Erlent Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Innlent Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fleiri fréttir Lægðardrag teygir sig yfir landið Myndir: Opnunarhóf nýs Kvennaathvarfs Tekinn á 190 þar sem má aka á 90 kílómetra hraða Einn enn með stöðu sakbornings vegna E. coli sýkingar á Mánagarði Skrifað undir viljayfirlýsingu vegna jarðganga til Eyja Túlkunaratriði hvað eigi að gera við umsóknina Ruddist inn í íbúð og reyndi að komast inn á upptekið baðherbergið Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Búið að opna fyrir umferð að nýju eftir bilunina Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Sjá meira