Innlent

Mikil áta í kringum landið

MYND/E.Ól

Mikil áta var víðast hvar í kringum landið, einkum úti fyrir Suðurströndinni, þegar rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson fór í sinn árlega vorleiðangur.

Honum lauk 26. maí en grennslast var fyrir um ástand sjávar, næringarefni, gróður og átu í hafsvæðunum við Ísland. Athuganir voru gerðar á alls 96 stöðvum í hafinu umhverfis landið, bæði á landgrunninu sjálfu og utan þess.

Niðurstöður leiða í ljós að hiti og selta voru yfir langtímameðaltali sunnan og vestan við land og undir eða nærri því fyrir norðan. Fyrir Austurlandi voru hiti og selta um meðallag. Mikill gróður var vestur og norður af landinu en lítill annars staðar nema við Suðurströndina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×