Innlent

Kaupsamningum fækkar um nærri 75 prósent milli ára

MYND/Páll Bergmann

Ríflega 250 kaupsamningum var þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maí síðastliðnum sem er 74 prósentum minna en í sama mánuði í fyrra. Þá reyndust þeir nærri 970. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fasteignamats ríkisins.

Heildarvelta í maímánuði í ár nam 7,4 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var rúmar 29 milljónir króna. Í maí í fyrra voru kaupsamningarnir 969, veltan var rúmir 29 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning um 30 milljónir króna.

Þegar maí er borinn saman við aprílmánuð fækkar kaupsamningum um nærri 19 prósent og velta minnkar um nærri 23 prósent. Í apríl var þinglýst 310 kaupsamningum, velta var 9,6 milljarðar króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning tæp 31 milljón króna.

Þá sýna tölur Fasteignamatsins þinglýstum kaupsamningum hafi fækkað um tíu í þessari viku miðað við síðustu viku. Frá 6. til 12. júní reyndust þeir 47 á höfuðborgarsvæðinu og var heildarveltan um 1,3 milljarðar króna og meðalupphæð á samning 27,5 milljónir króna. Til samanburðar er meðaltal síðustu 12 vikna 60 þinglýstir samningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×