Innlent

Tala fyrir framboði Íslands til öryggisráðs á allsherjarþingi SÞ

MYND/GVA

Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verða í New York í þessari viku þar sem þau munu vinna að framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í tengslum svonefnda ráðherraviku samtakanna.

63. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verður sett á morgun og munu forystumenn ríkisstjórnarinnar hitta þjóðarleiðtoga og aðra ráðamenn sem sækja þingið, ræða samskipti ríkja og tala fyrir framboði Íslands til öryggisráðsins.

Á vef forsætisráðuneytisins kemur enn fremur fram að forsætisráðherra flytji aðalræðu fyrir Íslands hönd í allsherjarþinginu á föstudaginn kemur og sama dag fundar hann með Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann leiðir enn fremur fund smærri ríkja um nýjar umhverfisógnir miðvikudaginn 24. september og ávarpar fund um framkvæmd Þúsaldarmarkmiða SÞ fimmtudaginn 25. september. „Hann mun ennfremur eiga fundi með fulltrúum úr viðskiptalífi og háskólum og verður heiðursgestur við lokunarathöfn verðbréfamarkaðar NASDAQ miðvikudaginn 24. september," segir í tilkynningunni.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verður hins vegar einn aðalræðumanna á fundi UNIFEM um málefni Afríku í dag ásamt því að sækja fund utanríkisráðherra Norðurlanda, samráðsfund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess á miðvikudaginn og leiðir sérstakan fund kvenutanríkisráðherra aðildarríkja SÞ á föstudag.

Tæpur mánuður er þar til gengið verður til kosninga í öryggisráðið og tekur starfsemi Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna mið af því á þessum síðustu vikum. Framboð Íslands nýtur stuðnings allra norrænu ríkjanna og munu ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Noregs og Sviþjóðar leggja framboðinu lið.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×