Tala fyrir framboði Íslands til öryggisráðs á allsherjarþingi SÞ 22. september 2008 13:58 MYND/GVA
Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verða í New York í þessari viku þar sem þau munu vinna að framboði Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í tengslum svonefnda ráðherraviku samtakanna. 63. allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna verður sett á morgun og munu forystumenn ríkisstjórnarinnar hitta þjóðarleiðtoga og aðra ráðamenn sem sækja þingið, ræða samskipti ríkja og tala fyrir framboði Íslands til öryggisráðsins. Á vef forsætisráðuneytisins kemur enn fremur fram að forsætisráðherra flytji aðalræðu fyrir Íslands hönd í allsherjarþinginu á föstudaginn kemur og sama dag fundar hann með Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. Hann leiðir enn fremur fund smærri ríkja um nýjar umhverfisógnir miðvikudaginn 24. september og ávarpar fund um framkvæmd Þúsaldarmarkmiða SÞ fimmtudaginn 25. september. „Hann mun ennfremur eiga fundi með fulltrúum úr viðskiptalífi og háskólum og verður heiðursgestur við lokunarathöfn verðbréfamarkaðar NASDAQ miðvikudaginn 24. september," segir í tilkynningunni. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra verður hins vegar einn aðalræðumanna á fundi UNIFEM um málefni Afríku í dag ásamt því að sækja fund utanríkisráðherra Norðurlanda, samráðsfund utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins og samstarfsríkja þess á miðvikudaginn og leiðir sérstakan fund kvenutanríkisráðherra aðildarríkja SÞ á föstudag. Tæpur mánuður er þar til gengið verður til kosninga í öryggisráðið og tekur starfsemi Íslands á vettvangi Sameinuðu þjóðanna mið af því á þessum síðustu vikum. Framboð Íslands nýtur stuðnings allra norrænu ríkjanna og munu ráðherrar Danmerkur, Finnlands, Noregs og Sviþjóðar leggja framboðinu lið.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Fleiri fréttir Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Sjá meira