Spenna í Trípólí vegna átaka vopnaðra hópa 24. júní 2008 12:57
Mikil spenna ríkir í hafnarborginni Trípolí í Líbanon eftir skotbardaga milli vopnaðra hópa í gær og fyrradag. Hermenn gæta nú friðarins í Trípolí en það róar ekki íbúa borgarinnar. Herinn hefur ekki sýnt mikinn mátt í skærum vopnaðra hópa í landinu undanfarna mánuði. Átökin sem blossuðu upp á sunnudag voru á milli alavítahóps sem styður Hisbollah-samtök sjíamúslima og hóps súnnímúslima sem styður stjórn Fuads Siniora. Níu menn hafa fallið og fimmtíu særst. Vonir stóðu til að slík átök væru að baki eftir að stríðandi fylkingar skrifuðu undir samkomulag um breytingar á stjórnskipan landsins nýlega. En Siniora hefur gengið illa að mynda þjóðstjórn, eins og samkomulagið gerði ráð fyrir, og vopnaðir hópar í landinu eru farnir að ókyrrast. Samkvæmt samkomulaginu verður kjördæmaskipan landsins endurskoðuð á næstu mánuðum og kosið á ný á næsta ári. En á meðan ekki tekst að halda aftur af byssumönnum eru allar slíkar áætlanir í uppnámi.
Mest lesið Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent Saka Þorgerði um brot á þingsköpum Innlent Að kljúfa þjóðina með tilfinningaþrunginni spurningu Innlent Kostar allt að 210 þúsund krónum að vera í golfklúbbi Innlent „Ég var ekki að deyja, en ég þurfti hjálp“ Innlent Grimmdarlegu ofbeldi lýst í ákærunni Innlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Eldhaf í Glasgow Erlent Þriðjungur andvígur atkvæðagreiðslunni Innlent Fleiri fréttir Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Sjá meira