Innlent

Ógnaði ökumanni með hnífi eftir árekstur

Nokkuð harður árekstur varð á Akureyri laust fyrir klukkan 23 í gærkvöldi þegar bifreið var ekið í veg fyrir aðra.

Ökumanninum sem ekið var í veg fyrir svall móður og dró hann upp hníf og hafði í hótunum við hinn ökumanninn. Ekki kom þó til átaka en farþegi í bifreið þess sem dró upp hnífinn varð fyrir minni háttar meiðslum.

Sá sem brá hnífnum reyndist hafa neytt áfengis fyrir aksturinn en áfengismagn við prófun lögreglu mældist þó ekki nægilega mikið til að kalla á framhaldsrannsókn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×