Krabbameinsfélagið fær veglega gjöf 27. október 2008 13:51 Á myndinni má sjá frá vinstri - Valdísi Beck, markaðsfulltrúa Icepharma/Roche, Guðrúnu Agnarsdóttur, forstjóra Krabbameinsfélags Íslands, og Áslaugu Guðnýju Jónsdóttur, markaðssjóra Icepharma/Roche.
Lyfjafyrirtækið Roche hefur ákveðið að styrkja söfnunarátak Krabbameinsfélags Íslands, bleiku slaufuna, með kr. 500.000. Styrkurinn fer til greiðslu á nýjum, stafrænum tækjabúnaði Leitarstöðvarinnar, sem auka mun líkurnar á því að brjóstakrabbamein greinist snemma. „Því fyrr sem brjóstakrabbamein greinist þeim mun meiri eru lífslíkurnar," segir í tilkynningu frá Roche og Krabbameinsfélaginu. „Roche hefur styrkt Krabbameinsfélagið árlega með ýmsum hætti. Í ár fer andvirði söfnunarátaksins til að greiða fyrir nýju leitartækin, en Roche hefur ávallt lagt áherslu á að leggja sitt af mörkum til samfélagsins og gefið rausnarlega til vísindarannsókna og góðgerðarmála," segir Valdís Beck, markaðsfulltrúi hjá Roche, en í yfir 110 ár hefur fyrirtækið einbeitt sér að nýsköpun, þróun, framleiðslu og markaðssetningu lyfja og greiningarvara. Roche er eitt af leiðandi fyrirtækjunum á sviði krabbameinslyfja, þar á meðal eru líftæknilyf við brjóstakrabbameini. Í tilkynningunni segir að þessi líftæknilyf séu mótefni sem bindast og hlutleysa ákveðin prótein sem gegna hlutverki í þróun brjóstakrabbameins. „Sum líftæknilyf eru einnig talin virkja ónæmiskerfi einstaklingsins í baráttunni við brjóstakrabbamein." „Við erum mjög ánægð með að fá þennan styrk frá Roche og kunnum vel að meta stuðninginn. Baráttan gegn brjóstakrabbameini er barátta okkar allra, og vinnst með öflugu samstarfi margra ólíkra þátta, hvort sem það eru vísindarannsóknir, árveknisátök, bætt leit að krabbameini á byrjunarstigi, ný lyf og tækni við meðferð eða stuðningshópar sjúklinga," segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands. „Framfarir í þróun og framleiðslu lyfja sem geta læknað eða komið í veg fyrir krabbamein er veigamikill þáttur í baráttunni gegn þessum algenga sjúkdómi. Sala bleiku slaufunnar hefur gengið vonum framar í ár og erum við afar þakklát og stolt yfir því hvernig þjóðin öll hefur stutt okkur og staðið saman," segir Guðrún að lokum.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent