Vilja reglur eða frumvarp um skipan í opinber embætti 4. febrúar 2008 16:18 Árniu Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri - grænna, er meðal flutningsmanna frumvarpsins. MYND/GVA
Fimm þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa lagt fram þingsályktunartillögu um að forsætisráðherra verið falið að skipa nefnd sem á að móta reglur og jafnvel semja frumvarp um verkferla og meðferð faglegs hæfnismats við skipan í opinber embætti. Á nefndin að kanna hvort faglegar hæfnismatsnefndir fái víðara verksvið og veiti umsagnir um fleiri embætti en nú gildir. Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að opinberar stöðuveitingar hafi oft vakið harðar deilur og verið kærðar til umboðsmanns Alþings eða kærunefndar jafnréttismála. Þar hafi komið fram að geðþótti eða eigið mat einstakra ráðherra hafi verið látið ráða en sú staða samrýmist ekki hörðum kröfum til opinberrar stjórnsýslu. „Það er mikilvægt að almenningur beri traust til stjórnsýslunnar og geti reitt sig á að stjórnvaldsákvarðanir eins og opinberar stöðuveitingar standist skoðun þannig að umsækjendur um opinbert starf geti gengið út frá því sem vísu að þeir séu metnir á grundvelli málefnalegra sjónarmiða og þeirra krafna sem gerðar eru til viðkomandi starfs og auglýstar hafa verið," segir í greinargerðinni. Þar segir enn fremur að embætti í dómskerfinu séu sérstaklega mikilvæg í þessu tilliti enda dómsvaldið eitt af grunnstoðum þrískiptingar ríkisvaldsins. Enginn vafi megi leika á um hlutleysi dómstóla eða á því að dómarar séu valdir til starfa á faglegum forsendum eingöngu. „Því er ástæða til að nefndin skoði sérstaklega hvernig skipan dómara í embætti verði best háttað þannig að hún verði ekki tortryggð heldur þvert á móti auki traust almennings á dómskerfinu," segja tillöguhöfundar. Vísað er til hæfnisnefnda sem fjallar um hæfni dómara og háskólamanna og sagt að hlutverk slíkra hæfnisnefnda megi ekki vera neinum vafa undirorpið, né heldur þýðing þess mats sem þær vinna og að hve miklu leyti veitingavaldshafinn er bundinn af áliti matsnefnda. „Enn fremur er full ástæða til að skoða hvort slíkar hæfnisnefndir eigi við í fleiri tilvikum en nú er," segir í greinargerðinni. Leggja tillöguhöfundar til að forsætisráðherra skipi nefnd með með þátttöku allra þingflokka sem á að fjalla um þessi mál. Gert er ráð fyrir að nefndin ljúki störfum fyrir þingsetningu næstkomandi haust svo að nýjar reglur og eftir atvikum ný lög geti tekið gildi í byrjun árs 2009.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira