Ráð eða ráðandi í stað ráðherra 4. febrúar 2008 17:14 MYND/GVA
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, mælti í dag fyrir þingsályktunartillögu sinnum að ríkisstjórninni yrði falið að undirbúa breytingar á stjórnarskrá og lögum til þess að taka upp nýtt starfsheiti ráðherra sem bæði kyn gætu borið. Ráð, ráðandi, ráðseti og ráðseta voru meðal þeirra tillagna sem þingmaðurinn hefur fengið frá áhugasömum landsmönnum.Steinunn benti á að tillagan hefði vakið nokkra athygli þegar hún var lögð fram, mun meiri athygli en ýmis önnur mál sem hún hefði rætt um, eins og Sundabraut og forgangsakreinar Strætós. Taldi hún að málið hefði hitt á einhvern þann tímapunkt að menn hafi verið tilbúnir að ræða það á opinn hátt.Steinunn vísaði til þess að sams konar tillaga hefði áður verið lögð fram, fyrir 15 árum, en málinu hefði þá verið lýst sem hallærisgangi þess tíma. Vonaði hún að svo yrði ekki nú.Steinunn sagði enn fremur að málið væri angi af umræðu um íslenska tungu sem hefði verið öflug í tengslum við 200 ára ártíð Jónasar Hallgrímssonar á haustdögum. Málið væri líka hluti af kynjabaráttunni. Málið væri ekki það sem skipti öllu í því sambandi heldur væri það ákveðið birtingarform á mismunun sem hún teldi við hæfi að ræða á Alþingi.Steinunn sagðist hafa fengið gríðarlega sterk viðbrögð við málinu, bæði hér innanlands og hjá Íslendingum í útlöndum. Henni hefði borist fjöldinn allur af tillögum að nýjum heitum. Hún legði ekki fram sérstaka hugmynd að heiti með þingsályktunartillögunni en þau sem oftast hefðu verið nefnd í tillögum sem henni hefðu borist væru ráð, ráðandi, ráðfrú og ráðherra og ráðseti og ráðseta.Sagðist Steinunn Valdís vonast til að ekki færi eins fyrir málinu og þegar það var síðast lagt fram, það er að það yrði svæft í nefnd heldur yrði það sett í einhvern farveg.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira