Klefafélagar á Litla Hrauni gera þarfir sínar fyrir framan hvorn annan 4. febrúar 2008 14:34 Litla Hraun
Vísir greindi frá óánægju fanga í morgun sem snýr að því að tveir fangar séu vistaðir í sama klefa. Fangelsismálayfirvöld segja vandann tímabundinn því von sá á að tíu fangaklefar á Akureyri bætist við innan skamms. Afstaða félags fanga segir hinsvegar engu skipta hvort ástandið sé tímabundið eður ei. Aðstæðurnar séu skelfilegar þar sem t.d eitt sóðalegt klósett sé í fyrrnefndum tveggja manna klefum. Yfirlýsingu frá félaginu má lesa hér að neðan. Hér er eitt af klósettunum sem eru í tveggja manna klefunum. „AFSTAÐA félag fanga tekur undir það með fangelsismálastjóra að starfsfólk á Litla-Hrauni er almennt til fyrirmyndar og hefur yfir mikilli fagþekkingu og kunnáttu að ráða. Það breytir því þó ekki að aðstæður sem föngum er nú boðið upp á Litla-Hrauni og í Kópavogi, eftir því sem fregnir þaðan herma, eru skelfilegar. Þó skiptir engu máli hvort þær eru tímabundnar eður ei. Í þeim klefum þar sem tveir fangar eru vistaðir saman á Litla-Hrauni er eitt sóðalegt klósett, án setu, boltað í vegg, þar sem annar gerir þarfir sínar fyrir augum hins. Þar er einnig fata sem gegnir hlutverki vasks, eins konar vaskafata. AFSTAÐA sér ekki að ástandið batni að ráði með 10 fangaklefum á Akureyri. Það eru langir biðlistar eftir fangelsisplássum og þeir gera lítið annað en að lengjast. Dómar virðast vera að þyngjast og afbrotum að fjölga. Við þessu virðumst við Íslendingar einfaldlega engin ráð hafa. Saga byggingar nýs fangelsis er orðin tveggja áratuga gömul og vilji er ekki fyrir því að leggja til nauðsynlegt fé til fangelsismála. AFSTAÐA vill hrósa fangelsisyfirvöldum fyrir það sem þó hefur áunnist á undanförnum árum, þrátt fyrir fjárskort en hvetur þó til þess að þau úrræði sem möguleg eru verði nýtt. Langstærstur hluti íslenskra fanga er læstur inni í öryggisfangelsum og nú eru þeir farnir að hrannast upp. Þessu þarf einfaldlega að breyta, annað hvort með því að auka við pláss eða að fækka föngum. Annað er ekki í boði. Eitt sinn var fangelsum lokað, að hluta, til á sumrin til að spara. Nú er það útilokað. Fangavist varir lengur nú en áður og sífellt fjölgar föngum. Eftir því sem aðstæður verða erfiðari og svigrúm í fangavistinni minni aukast líkur á nýjum afbrotum og endurkomu í fangelsi. Þetta er sú staðreynd sem blasir við Íslendingum í dag. Íslendingar hafa um tvennt að velja; að sætta sig við ástandið í fangelsum og þá um leið þá fanga sem skila sér út á götu eða að spyrna við fæti og snúa þróuninni við. Til þess eru færar leiðir." Sjá einnig: Segja Fangelsið á Litla-Hrauni yfirfullt Timabundi ráðstöfun á vista fanga saman í klefa
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira