Hitaveitureikningurinn hækkar 24. september 2008 15:43 MYND/Róbert
Viðskiptavinir Orkuveitunnar geta átt von á því að reikningur vegna heitavatnsins hækki um 300 krónur að meðaltali um næstu mánaðamót. Stjórn Orkuveitunnar ákvað á fundi sínum á föstudag að hækka gjaldskrá um tæp tíu prósent og hefur iðnaðarráðherra staðfest þá hækkun. Þetta þýðir samkvæmt Orkuveitunni að hitareikningur meðalíbúðarinnar hækkar um 300 krónur. Hækkun kostnaðar og fjárfesting í nýrri hitaveitu frá Hellisheiði eru ástæður hækkunarinnar. Orkuveitan segir enn fremur í tilkynningu að gjaldskrárbreytingin sé sú fyrsta í þrjú ár en á þeim tíma hafi byggingarvísitala hækkað um 41 prósent og vísitala neysluverðs um 29 prósent. Hver rúmmetri af heitu vatni hækkar úr 65,23 krónum í 71,56 krónur án virðisaukaskatts.„Byggingavísitalan lýsir ágætlega kostnaðarþróun hitaveitna svo sem vegna verklegra framkvæmda og innkaupa - innlendra sem erlendra. Orkuveitu Reykjavíkur hefur tekist að hagræða í rekstri sínum á síðustu árum svo að ekki kemur til meiri hækkunar nú. Hækkunin er þriðjungur af hækkun vísitölu neysluverðs frá síðustu gjaldskrárbreytingu og um fjórðungur af hækkun vístölu byggingarkostnaðar," segir í tilkynningunni.Orkuveitan segir enn fremur að varmastöð Hellisheiðarvirkjunar verði tekin í gagnið á næsta ári og að hún muni sjá höfuðborgarsvæðinu fyrir heitu vatni allt fram til ársins 2030. Heildarkostnaður við hana sé 13 milljarðar en auk þessarar fjárfestingar standa yfir umfangsmiklar umbætur á dreifikerfum hitaveitu, sérstaklega í Hafnarfirði og á Vesturlandi. „Þróun kostnaðar- og gengisvísitalna á næstu misserum mun því ráða því hvort frekari breytinga á heitavatnsverðinu verður þörf," segir í tilkynningu Orkuveitunnar.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira