Innlent

Varað við vatnavöxtum í ám á hálendi

Lögreglan á Hvolsvelli varar við miklum vatnavöxtum í ám á hálendi innan umdæmisins. Samkvæmt upplýsingum frá Vatnamælingum í morgun eru ár á Þórsmerkurleið ófærar.

Þeim sem eigi erindi inn á þessar slóðir er bent á að hafa samband við Vegagerðina eða lögreglu vegna upplýsinga um færð. Lögreglan hefur það sem af er þessari viku aðstoðað nokkra ökumenn sem fest hafa bifreiðar sínar í ám. Slík ferðalög eru hættuleg og eru einungis á færi kunnáttumanna á vel útbúnum jeppum segir í tilkynningu lögreglu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×