Erlent

Barbie hvað?

Óli Tynes skrifar
„Stick'em up.“
„Stick'em up.“ Mynd/AP

Leikföng barna eru margvísleg. Og litast af umhverfinu. Þessi litla stúlka í Írak leikur sér með það sem hún kannski sér mest. Leikfangaútgáfu af hríðskotariffli.

Og íraskir lögreglumenn geta ekki varist brosi við að sjá litla krúttið stilla sér vígalega upp. Írösk börn hafa liðið skelfilega í stríðinu sem staðið hefur undanfarin ár.

Þau skilja í raun ekki hvað er að gerast en þurfa iðulega að horfa á pabba og mömmu eða aðra ástvini í tætlum eftir sprengjur. Eða sundurskotin.

Oft þurfa þau raunar ekki að skilja neitt. Því þau eru sjálf í tætlum eftir sprengjur eða sundurskotin.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×