Innlent

Mikið ber í milli í frásögnum af mótmælum

Fundur var haldinn í allsherjarnefndarnefnd í morgun um mótmælin á Suðurlandsvegi 23. apríl síðastliðinn.

Á fundinn mættu, Stefán Eiríksson lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri og Sturla Jónsson og Einar Árnason, talsmenn vörubílsstjóra, ásamt lögmanni. Fulltrúar beggja hópa fóru yfir atburðarrásina og ber mikið á milli að sögn Birgis Ármannssonar formanns nefndarinnar.

Eins og fram hefur komið sló í brýnu með lögreglunni og vörubílstjórum og beitti lögregla piparúða og kylfum í átökunum. Þá var nokkur fjöldi bílstjóra handtekinn og vörubílar færðir af vettvangi. Tilgangur fundarins var að afla upplýsinga og eru þær að mestu leyti komnar fram að sögn Birgis. Ekkert framhald verður á þeim umræðum sem fóru fram í morgun hjá allsherjarnefnd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×