Segist leggja sitt af mörkum til að leysa deilu 30. apríl 2008 15:05 MYND/Auðunn
Guðlaugur Þór Þórðarssson heilbrigðisráðherra sagðist á Alþingi í dag myndu leggja sitt af mörkum til þess að leysa deilu stjórnenda Landspítalans og um hundrað skurð- og svæfingarhjúkrunarfræðinga sem sagt hafa upp og ganga út á miðnætti. Hann fundaði í dag með hjúkrunarfræðingum. Siv Friðleifsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi heilbrigðisráðherra, sagði við utandagskrárumræðu að alvarleg staða blasti við og neyðarástand myndi skapast ef hjúkrunarfræðingar hyrfu úr sínum stöfum. Benti hún að mikill óróleiki hefði verið innan Landspítalans vegna áforma sjálfstæðismanna um miklar breytingar í heilbrigðismálum. Benti Siv á að með vaktabreytingum hjá hjúkrunarfræðingum væri verið að skerða kjör þeirra og það stangaðist á við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarflokkanna. Þar kæmi fram að minnka ætti óútskýrðan launamun kynjanna og bæta laun kvennastétta. Sagði hún að ef uppsagnirnar gengju eftir gæti enginn tekið við störfum þeirra og biðlistar myndu hlaðast upp og spurði hún ráðherra hversu lengi hann gæti verið án þessara 100 hjúkrunarfræðinga. Spurði hún enn fremur hvort ráðherra hygðist gefa út yfirlýsingu til þess að ná hópnum til baka og taldi sjálf ráðherra verða að gera það. Guðlaugur Þór Þórðarson sagði erfiða stöðu komna upp hjá mikilvægum starfsmönnum. Deilur um kaup og kjör væru ekki hjá ráðherra og heldur ekki vaktamál að öllu jöfnu en hann hefði í gær og í dag fundað með aðilum málsins. Hér væri ekki um sparnaðarráðstöfun að ræða heldur endurskipulag vakta. Stjórnendur spítalans hefðu viljað frestað breytingunum um fimm mánuði og finna nýjar útfærslur í samvinnu við starfsmenn og honum fyndist það ekki hafa komið fram nógu skýrt. Fagnaði hann því að geislafræðingar hefðu frestað uppsögnum sínum um mánuð og sagðist myndu leggja sitt af mörkum til þess að leysa þessa deilu. Sagðist hann hafa átt góðar viðræður um hjúkrunarfræðinga í dag en nauðsynlegt hefði verið að skipuleggja viðbrögð við uppsögnunum og verið væri að undirbúa viðbragðsáætlun. Vonaðist hann til þess að ásættanleg lending fengist í málinu og til uppsagnanna kæmi ekki. Þingmenn stjórnarandstöðunnar vísuðu ábyrgðinni á ástandinu á hendur ráðherra og var bent á að neyðarástand myndi skapast sem hefði áhrif á aðrar sjúkrastofnanir í landinu. Bæta þyrfit kjör hjúkrunarfræðinga og starfsaðstæður þeirra. Jafnframt lýstu allir þeir sem tóku til máls áhyggjum af ástandinu og vonuðust til að deilurnar leystust.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira