Fara yfir hvernig þeir geti aðstoðað LSH 30. apríl 2008 11:40 MYND/GVA
Magnús Skúlason, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir að menn þar á bæ fari nú yfir hvernig þeir geti aðstoðað Lanspítalann vegna uppsagna svæfingar- og skurðhjúkrunarfræðinga og geislafræðinga sem taka gilid á miðnætti. Hann vonast þó til að deilan leysist þannig að ekki þurfi að grípa til neyðarúrræða. Eins og fram hefur komið í fréttum hafa stjórnendur Landspítalans fundað með fulltrúum úr heilbrigðisráðuneytinu og fulltrúum frá sjúkrahúsunum á Selfossi, Akranesi, í Reykjanesbæ og Hafnarfirði um að þær stofnanir leggi til aðstoð vegna þeirrar stöðu sem kemur upp þegar 140 starfsmenn ganga út af Landspítalanum á miðnætti. Magnús Skúlason, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurland, segir í skoðun hvað stofnun hans geti gert en eins og gefi að skilja snúi þetta fyrst og fremst að skurðstofu- og svæfingarþjónustu og þjónustu á röntgendeildum. „Við höfum minnstu skurðstofuþjónustuna af þeim sjúkrahúsum sem eru í kringum Reykjavík og því minni aðstoð sem við getum veitt," segir Magnús. Geta látið hlutina ganga upp fram yfir helgi Hann segir að fram hafi komið hjá stjórnendum Landspítalans að þeir geti látið hlutina ganga upp fram yfir helgi en þá verði fólk á nærliggjandi sjúkrahúsum að vera í startholunum. „Ef af þessu verður verðum við að breyta vinnuprógrammi hjá okkur og svo erum við með takmarkað rými og mannskap," segir Magnús. Hann bendir á að neyðaráætlun Landspítalans snúi fyrst og fremst að því að veita nauðsynlega bráðaþjónustu sem þýðir að allar valaðgerðir verði að bíða. „En það þarf að leysa þessa deilu, það er það sem þarf að gera," Magnús Skúlason.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira