Innlent

Fasteignagjöld stúdenta hækka í Reykjavík

Magnús Már Guðmundsson skrifar
Björg Magnúsdóttir er formaður SHÍ.
Björg Magnúsdóttir er formaður SHÍ.

Reykjavíkurborg hefur hækkað fasteignagjöld stúdentagarða sem Félagsstofnun stúdenta rekur á háskólasvæðinu og við Lindargötu. Hækkunin nemur 5,25% á mánuði.

,,Það er verulega verið að sauma að stúdentum og við erum foxill yfir þessu," segir Björg Magnúsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands.

Rebekka Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi Félagsstofnunar stúdenta, segir hækkun húsaleigu koma sér illa fyrir umbjóðendur FS.

,,Borgin hefur veitt ákveðin afslátt af fasteignargjöldum við stúdenta en sá stuðningur hefur undanfarið farið þverrandi," segir Björg og bætir við að leiguverð fylgi vísitölu neysluverðs sem hafi hækkað umtalsvert seinustu misseri sem bætist ofan á hækkun borgarinnar.

Til þess að rekstur Stúdentagarða standi undir sér þarf FS að hækka leiguna. ,,FS á engan annan kost. Hækkunin nemur nákvæmlega þeim kostnaði sem fylgir ákvörðun borgarinnar og skilar sér ekki í auknum rekstrartekjum," segir Björg.

Stúdentaráð Háskóla Íslands sendi rétt í þessu frá sér eftirfarandi ályktun:

Stjórn Félagsstofnunar stúdenta hefur ákveðið að hækka leigu á stúdentagörðum um 5,25% og tekur sú hækkun gildi með nýjum leigusamningum í ágúst og september 2008. Ástæðan er rakin beint til þverrandi stuðnings Reykjavíkurborgar við Félagsstofnun stúdenta en á síðustu fjórum árum hefur sá stuðningur dregist saman um því sem nemur 24 milljónum. Það er ömurlegt að í eins hörðu ári og nú er skuli borgaryfirvöld sauma jafnhart að stúdentum eins og raun ber vitni. Stúdentaráð Háskóla Íslands skorar eindregið á borgaryfirvöld að dusta nú rykið af velferðarplöggum og leysa um leið stúdenta úr snörunni.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×