Innlent

Beðið eftir svörum frá Seðlabanka Evrópu og Bandaríkjanna

Seðlabanki Íslands hefur beðið Seðlabanka Evrópu og Bandaríkjanna um lán til þess að takast á við yfirstandandi fjármálaerfiðleika. Frá þessu greindi Geir H. Haarde forsætisráðherra á blaðamannafundi í Helsinki í morgun.

Þar kom einnig fram að beiðninni hefði ekki enn verið svarað. Forsætisráðherra sagði enn fremur að Íslendingar þyrftu um fjóra milljarða dollara til viðbótar við þá tvo milljarða sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hygðist lána stjórnvöldum.

Fram hefur komið að Geir hafi í gær óskað eftir aðstoð hinna norrænu ríkjanna og hefur þegar verið ákveðið að skipa starfshóp til að vinna að tillögum um það hvernig hægt sé að aðstoða Íslendinga í kreppunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×