Vilhjálmur: Þetta er hræðilegt 28. október 2008 10:39 „
Þetta er meira en ég reiknaði með, þetta er alveg hræðilegt," segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins þegar hann er spurður út í stýrivaxtahækkun Seðlabankans. „Þetta er einn af jarðarfararsálmunum fyrir peningastefnuna og gjaldmiðilinn," segir Vilhjálmur og bætir við að hann vonist til að hækkunin vari ekki lengi. Hann segist hafa rætt við fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um þessi mál að undanförnu. „Auðvitað hefur maður talað við þetta fólk og það lagði áherslu á að það hefðu verið mistök að lækka vextina. Ég hlustaði á þeirra rök fyrir því en ég er bara ekki sammála þeim," segir Vilhjálmur. Vilhjálmur segir skipta mestu máli að koma genginu í hækkunarferil. „Sá gjaldeyrissjóður sem menn hafa verið að byggja upp skiptir mestu máli í því. Ég held að það sé númer eitt, tvö og þrjú, en ekki hvort vextirnir séu hærri eða lægri. Þessir vextir koma sér mjög illa fyrir fyrirtæki og heimili og skapa mjög mikinn vanda á þeim endanum." Það eru ákveðnir hlutar af atvinnulífinu sem hafa þurft að nota innlent fjármagn. Síðan þegar aðgangur að erlendu fjármagni hefur lokast þá hefur verið stólað ennþá meira á innlenda fjármagnið. Þegar vextirnir á innlenda fjármagninu eru síðan hækkaðir svona mikið þá eykur það á vandann.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Erlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Þorsteinn Ólafsson er látinn Innlent Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Fleiri fréttir Ríkisstjórnin beri ábyrgð á hindrunum Þórkötlu Óviðunandi að ákveðnir hópar barna búi enn við svo mikið úrræðaleysi Nýttu takmarkanir á sjúkraflugi til að þrýsta á borgina Ósáttir Grindvíkingar og undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði að komast á fullt Fleiri andvígir inngöngu í ESB Þorsteinn Ólafsson er látinn Grikki með tugi kílóa kókaíns undir fölsku gólfi Starfsleyfi takmarkað vegna lyfjaávísana Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Bein útsending: Ræða öryggis- og stjórnmálasamstarf á Eystrasaltssvæðinu Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Eldhúsdagur runninn upp Fræsa og malbika Reykjanesbraut við Smáralind í kvöld Tryggvi Gíslason er látinn Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Sjá meira