Innlent

Indefence.is í útrás á átta tungumálum

Tæplega sextíu þúsund manns hafa nú skráð nafn sitt við þjóðarávarp til Breta á síðunnni Indefence.is. Í ávarpinu er notkun breskra stjórnvalda á hryðjuverkalögum til að frysta eignir íslenskra banka í Bretlandi er mótmælt, og sjónarmið Íslendinga útskýrt.

Aðstandendur síðunnar hafa þá fært út kvíarnar, og bjóða nú upp á þjóðarávarpið á átta tungumálum. Það er nú aðgengilegt á hollensku, dönsku, frönsku, spænsku, ítölsku og þýsku, auk ensku og íslensku.

Átakinu var hleypt af stokkunum á miðvikudaginn fyrir tæpri viku, og hefur vakið töluverða athygli út fyrir landssteinana. Markmiðið aðstandenda þess er að afhenda breskum stjórnvöldum yfirlýsinguna og undirskriftirnar í viðurvist fjölmiðla.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×