Erlent

Morð á umferðarljósum

Óli Tynes skrifar
Lögreglumenn á morðstað.
Lögreglumenn á morðstað. MYND/AP

Enn eitt pólitískt morð var framið í Moskvu í gær þegar Ruslan Yamadayev, fyrrverandi þingmaður var skotinn til bana.

Yamadayev var á ferð á bifreið sinni og var skotinn til bana þegar hann stoppaði við umferðarljós.

Þetta gerðist í miðri Moskvuborg. Yamadayev var upprunninn frá Tsjetsníu og bróðir stríðsherra þar í landi.

Það er áhættusamt að vera stjórnmálamaður í Rússlandi því pólitískir andstæðingar skirrast ekki við að leigja sér morðingja ef þeir eru ósammála. 

Glæpasamtök myrða einnig hiklaust stjórnmálamenn sem þeir telja andstæða hagsmunum sínum.

Það er raunar einnig hættulegt að vera blaðamaður í Rússlandi því morð og misþyrmingar á þeim eru tíðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×