Jón Baldvin: Davíð stendur harðast gegn aðstoð frá IMF 19. október 2008 13:43 Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, segir að það sem standi helst í vegi fyrir því að Íslendingar sæki um aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF), sé andstaða Davíðs Oddssonar, seðlabankastjóra. Jón Baldvin var gestur í Silfri Egils í Ríkissjónvarpinu í dag. Þar sagðist hann hafa öruggar heimildir um það frá vinum sínum í Sjálfstæðisflokknum, sem enn væru nokkrir, að "seðlabankastjórinn" standi haður á móti aðstoð frá IMF. Jón sagði að þjóðarskútan hefði strandað, meðal annars fyrir tilstilli Davíðs Odssonar og nú væri staðan sú að hann væri á strandstaðnum „að þvælast fyrir." Að mati Jóns Baldvins er sá stimpill sem fylgir aðstoð frá IMF það sem við þurfum til þess að geta hafist handa við uppbyggingu íslensks efnahagslífs. „Ekki vegna þess að það er svo góður kostur, heldur vegna þess að við eigum engan annan kost," sagði Jón Baldvin. Jón bætti því einnig við að það væri tómt mál að tala um íslensku krónuna. Hún væri ónýtur gjaldmiðill og það þyrfti ekkert að ræða frekar. Hann staðhæfði einnig í viðtalinu að ef Ísland hefði gengið í Evrópusambandið á sínum tíma og tekið upp evru þegar landið uppfyllti þau skilyrði sem sett eru fyrir inngöngu í myntsamstarfið, væri Ísland ekki í núverandi vandræðum. Jón Baldvin sagði einnig afar mikilvægt að þeir aðilar sem rannsaka eigi aðdraganda bankahrunsins komi erlendis frá.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira