Byggingarstofnun í stað Brunamálastofnunar 6. febrúar 2008 16:12 MYND/Rósa
Byggingarstofnun mun taka við hlutverki Brunamálastofnunar og hlutverk slökkviliðs verður betur skilgreint í lögum samkvæmt frumvarpi um breytingar á lögum um brunavarnir sem Þórunn Sveinbjarnardóttir umhverfisráðherra hefur lagt fram á Alþingi. Frumvarpið snýr annars vegar að breytingum á löggjöf um byggingarmálefni og hins vegar breytingar á lögum um brunavarnir. Sem fyrr segir á ný stofnun, Byggingarstofnun, að taka við hlutverki sem Brunamálastofnun hefur sinnt auk þess sem stofnunin á að hafa ábyrgð framkvæmd byggingarmála sem hingað til hefur verið í höndum Skipulagsstofnunar. Gert er ráð fyrir að undir Byggingarstofnun heyri öll mál er varða öryggi bygginga, þ.m.t. brunavarnir, rafmagnsöryggi og eftirlit með lyftum, en þessir þættir hafa hingað til heyrt undir hinar ýmsu stofnanir og ráðuneyti. Með þessu á að einfalda allt eftirlit með öryggi mannvirkja. Lagt er til að lög um brunavarnir haldi gildi sínu sem sjálfstæð lög og að mestu óbreytt enda hafi þau í aðalatriðum reynst vel frá því að þau voru sett árið 2000. Í frumvarpinu er þessu til viðbótar lagt til að björgun á fastklemmdu fólki úr mannvirkjum og farartækjum verði eitt af lögbundnum verkefnum slökkviliða. Í meira en áratug hafa langflest slökkvilið landsins sinnt þessu verkefni án lagaskyldu. „Björgun fólks úr farartækjum, t.d. eftir umferðarslys, krefst sérhæfðs búnaðar og þjálfunar þeirra sem búnaðinn nota. Þegar beita þarf slíkum tækjum er nauðsynlegt að slökkvilið sé á staðnum vegna eldhættu við farartækið. Hefur því skapast sú hefð að slökkvilið sinni þessu verkefni og er kennsla í meðferð búnaðarins hluti af námsefni Brunamálaskólans. Búnaðurinn nýtist einnig við björgun fólks úr mannvirkjum. Með því að gera verkefnið lögbundið er tryggt að þessi þjónusta sé fyrir hendi á öllu landinu og hún uppfylli tilteknar lágmarkskröfur. Þannig verður unnt að setja reglur um lágmarksbúnað, þjálfun starfsmanna, forvarnir og viðbragðsáætlanir," segir í greinargerð með frumvarpinu.
Mest lesið Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif Innlent Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Erlent Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina Innlent „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Innlent Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Innlent Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Erlent „Klukkan tifar“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Innlent Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Innlent Fleiri fréttir Gerir aðra atlögu að Lagarfljóti um helgina „Klukkan tifar“ Skilti sem átti að fæla burt ferðamenn hefur öfug áhrif „Við hefðum viljað samráð frekar en samtal“ Bændur í baráttuhug á leið í herferð um landið Flaggskip kólumbíska sjóhersins býður almenningi um borð Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum ESB-barátta, hiti meðal kennara og vændisskilti í Suðursveit Forsetahjónin halda til Eistlands Ökumaður á sjúkrahús eftir slys á Fljótsheiði Sögusagnir farið af stað þegar hann sást á fundinum Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Bændur segja nei Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Skipar Eirík og Hildi sem landsréttardómara Landrisi í Öskju er lokið Nú má heita Hugríkur Húrinn og Aelía Rúa Ótímabært að hugsa um áhrif mögulegs verkfalls á sjúkraflug „Ég veit nákvæmlega hvar ég ætla að vera tólfta ágúst 2045“ „Þjóðin á rétt á að vita“ Þriggja milljarða vatnslögn skemmd: Gæti tekið tvö ár að fá nýja „Í þessu máli þá sat viðkomandi ekki skemur í fangelsi vegna lagabreytingarinnar“ „Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Best að vera ekki með stórar yfirlýsingar Dómari kannar aðbúnað barna í vist á einkaheimilum Dómsmálaráðherra svarar gagnrýni á reynslulausn Uppsögn kjarasamninga geti verið óhjákvæmileg Rafmagnslaust í Mosfellsdal Vara við vasaþjófum á Norðurlandi eystra Rökræddi við rabbínann: „Hann er vanur heimssviðinu og ég er gómur á plani“ Sjá meira