Vilja öll helstu launþegasamtök inn á sama ramma 6. febrúar 2008 12:07
Samtök atvinnulífsins freista þess nú að fá öll helstu launþegasamtökin til að gangast inn á samningaramma sem þegar liggur fyrir í kjaraviðræðum þeirra við Flóann og Starfsgreinasambandið. Þessir aðilar eru orðnir sammála um meginramma nýrra kjarasamninga sem felur í sér að þeir sem hafi lægsta tekjur og ekki hafa notið launaskriðs fái mestar hækkanir. Það er hins vegar ekki hægt að skrifa undir slíka samninga nema þeir sem hærri hafa tekjurnar séu tilbúnir að sætta sig við litlar sem engar launahækkanir. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að það þurfi allir að leggjast á eitt til þess að geta náð þessum meginmálum, það er að segja að hugsa um þá sem eru lægstir og hafa dregist aftur úr í launaskriðinu. Það þurfi gagnkvæmt tillit hjá hinum ýmsu hópum til þess að það gangi upp. Um leið vilja Samtök atvinnulífsins að ríkisvaldið komi að málum. Vilhjálmur segir að samtökin telji að huga þurfi að því strax ef það verður mikið atvinnuleysi næsta og vetur. Bæði verði greitt fyrir stóriðjuframkvæmdum og ýtt undir frekari opinberar framkvæmdir. Vilhjálmur segir að peningastefnan sé ekki að virka en baki atvinnulífinu stórtjón og það þurfi einnig að taka á þvi máli. Húsnæðismál láglaunafólks eru einnig rædd við ríkisvaldið og loks kjaramál opinberra starfsmanna. „Launakostnaðarþróun hjá opinberum aðilum, að hún sé með svipuðum hætti og hjá hinum almenna vinnumarkaði," segir Vilhjálmur.
Mest lesið „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Innlent Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Innlent Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla Innlent Árásarmaðurinn í Minnesota handtekinn Erlent Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti Innlent Gerðu árás á sjónvarpshúsið í miðri útsendingu Erlent Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Innlent Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Innlent Fyrsta konan sem stýrir MI6 Erlent Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Innlent Fleiri fréttir Ótækt að íþróttafélögin selji áfengi án leyfis Meðal stærstu skjálfta í Ljósufjallakerfi Guðmundur í Brim hættir hjá SFS Hótelharmleikur, áfengisleyfi í ólagi og hittaramessa Þyrlan á flugi yfir Kópavogi Helgi hafnar flutningi og lætur af embætti „Það er komin aðeins skýrari mynd“ Starfsfólk á kvikmyndasetti Nolan gistir í grunnskóla Þorbjörg Sigríður biður Ingibjörgu Isaksen afsökunar Engar framfarir þrátt fyrir brýningu Loftslagsráðs Íbúar í Kópavogi með öryggismyndavélar hafi samband við lögreglu Kanadískt svifryk hrellir borgarbúa Segir ásakanir SFS um blekkingu og afvegaleiðingu alvarlegar Stofna vinnuhóp til að sporna gegn ofbeldi í garð verslunarmanna Tryggir þjónustu við konur með endómetríósu Teikn á lofti þegar kemur að áfengisneyslu unglinga Hæ, hó og jibbíjeijað um allt land: Svona er dagskráin 17. júní Lágmarks lokanir í kringum Austurvöll á 17. júní Ísland, þvert á flokka kærir þrjú fyrir hatursorðræðu Þref á þingi og ráðherra vill bregðast við hækkandi raforkuverði Björgunarsveitir leita Sigríðar áfram Lausir úr haldi grunaðir um líkamsárás á Akureyri Höfðu samband við frönsku lögregluna vegna andlátanna Ný skýrsla: Raforkuverð heimila hafi hækkað um ellefu prósent Verður verkefnastjóri viðburða og grasrótarstarfs hjá Viðreisn Bein útsending: Kynning á þróun raforkukostnaðar og áhrifum á notendur Hvorki bókun 35 né veiðigjöld á dagskrá í dag Módelið svínvirkar fyrir marga en þó ekki alla „Kærkomin ró“ yfir höfuðborgarsvæðinu „Svo bakkarðu upp að línu og þenur drusluna“ Sjá meira