Stjórnvöld geta ekki setið með hendur í skauti 2. október 2008 10:18
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, segir stjórnvöld ekki geta setið með hendur í skauti eins og ástandið í þjóðfélaginu sé nú. Forða verði fjölda fólks frá gjaldþroti sem nú blasi við. Í pistli á heimasíðu samtakanna fjallar Jóhannes um ástandið og segir talsmenn atvinnulífsins ítrekað farið fram á að stjórnvöld tryggi að atvinnustarfsemin í landinu geti haldið áfram í sem eðlilegustum farvegi. Þessar aðgerðir og kaup á Glitni dugi hins vegar ekki einar og sér því ljóst sé að mörg heimili í landinu muni ekki geta staðið undir þeirri miklu kjaraskerðingu sem launþegar standi nú frammi fyrir. Mörg heimili stefna í gjaldþrot „Krónan er í frjálsi falli og gengisvísitalan í fyrsta skipti komin yfir 200 stig þegar þetta er skrifað. Gengislækkunin fer beint út í verðlagið með tilheyrandi verðhækkunum og tilkynningar um verðhækkanir birgja hrannast upp. Eldsneytisverð hækkar enn og hefur aldrei verið hærra. Jafnvel opinber fyrirtæki liggja ekki á liði sínu varðandi hækkanir eins og dæmið um Orkuveituna sýnir. Þeir sem eru í yngri kantinum hafa aldrei upplifað aðra eins verðbólgu og nú er. Vegna verðtryggingarinnar hækka svo afborganir af íbúðalánunum í takt við verðhækkanir, að ekki sé talað um gengistryggðu lánin þar sem skellurinn kemur fram fyrr," segir Jóhannes. Hann segir enn fremur að ef ástandið verði óbreytt muni mörg heimili lenda í gjaldþroti og þeim sé þegar farið að fjölga. Slíkt geti ekki aðeins haft afar afdrifaríkar fjárhagslegar afleiðingar heldur geti það leitt til hjónaskilnaða. „Ekki verður við það unað að stjórnvöld sitji með hendur í skauti þegar ástandið er jafn alvarlegt og það er núna hjá heimilunum í landinu. Ástæða er til að ítreka að stjórnvöld komi á fót samráðshópi. Það er grafalvarlegur hlutur ef stjórnvöld gera ekkert á meðan heimilin verða í stórum stíl gjaldþrota af ástæðum sem þau ráða engu um," segir Jóhannes enn fremur. Flýtimeðferð fyrir frumvarp um greiðsluaðlögun Hann bendir á að það liggi fyrir tilbúið frumvarp viðskiptiaráðherra um greiðsluaðlögn og ef það verði samþykkt geti heimili óskað eftir greiðsluaðlögun vegna skulda sinna. „Þetta myndi fela í sér að heimili sem komið er í greiðsluþrot af ástæðum sem það ræður engu um getur fengið metið hve stóran hluta höfuðstóls lána það getur ráðið við. Ef niðurstaðan væri t.d. sú að heimili gæti aðeins greitt 60% yrðu allar skuldir lækkaðar sem því nemur. Löggjöf af þessu tagi er fyrir hendi á öllum Norðurlöndum og raunar fleiri löndum og hefur gefist afar vel og gjaldþrotum heimila hefur fækkað verulega. Jafnframt er ljóst að lánadrottnar fá mun meira greitt til baka af lánum mjög skuldsettra heimila en ella fengist með því að keyra skuldunautana í gjaldþrot sem lítið fengist út úr. Þar sem Alþingi hefur hafið störf sín á nýjan leik er eðlileg krafa að viðskiptaráðherra leggi þetta frumvarp fram þegar í stað og það fái flýtimeðferð hjá alþingismönnum vegna þess hve alvarlegt ástandið er að," segir Jóhannes.
Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Leggjast gegn því að útivistartími 10 til tólf ára verði lengdur að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Sjá meira