Vilja akvæðagreiðslu um aðildarviðræður 18. september 2008 12:41
Þingmaður, fyrrverandi þingmaður og varaþingmaður Framsóknarflokksins hvetja til þess að lagt verði í þjóðaratkvæði næsta vor hvort Íslendingar eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þar með taka þau undir aðferðarfræði Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra. Þingmaðurinn Birkir Jón Jónsson, þingmaðurinn fyrrverandi Sæunn Stefánsdóttir og varaþingmaðurinn fyrrverandi Páll Magnússon, sem öll teljast til yngri deildar Framsóknarflokksins, hvetja til þess í grein í Fréttablaðinu í dag, að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu næsta vor um það hvort Íslendingar eigi að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið. Rök þremenninganna eru þau að ástand efnahagsmála og alþjóðlegs viðskiptaumhverfis sé með þeim hætti að nauðsynlegt sé að fá hið fyrsta úr því skorið hvort íslenska þjóðin sé reiðubúin í slíkar viðræður. Ef þjóðin samþykki þær fáist í eitt skipti fyrir öll úr því skorið hverju Íslendingar fái áorkað með hagsmuni sína í beinum viðræðum við Evrópusambandið. Ef þjóðin hafni hins vegar viðræðum geti stjórnvöld aðilar vinnumarkaðarins og almenningur einhent sér að þróa íslenskt samfélag og efnahagsumhverfi áfram út frá þeirri stöðu sem blasi við. Sjálf taka þau ekki afstöðu til þess hvort sækja eigi um aðild, en greinilegt er að þessir ungu Framsóknarmenn telja mikilvægt að kalla fram vilja þjóðarinnar í málinu. Þessi tillaga er í samræmi við vegvísi sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra og þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur kynnt. En í þeim vegvísi er gert ráð fyrir að fyrsta skrefið í Evrópumálum ætti að vera þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort fara eigi í aðildarviðræður.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Innlent Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Erlent Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Innlent Einn þeirra handteknu sautján ára Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Innlent Fleiri fréttir Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Harður árekstur á Norðvesturlandi tilkominn vegna framúraksturs Einn þeirra handteknu sautján ára Skoða stækkun á öryggismyndavélaneti Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Sjá meira