AFL kærir þýska vertinn 2. september 2008 15:21 Skrifstofa Sverris var ekki árennileg eftir atvikið. MYND/Austurglugginn/Gunnar
AFL starfsgreinafélag hefur kært árás vertsins á Cafe Margret á Breiðdalsvík, Horst Muller, á Sverri Má Albertsson framkvæmdastjóra félagsins. Í frétt í 24 stundum á dögunum greint frá því að veitingamaðurinn borgi veitingastúlkum sínum lág laun auk þess sem þau séu ekki gefin upp til skatts. Í fréttinni var vitnað í Sverri og sárnaði Horst það svo mjög að hann lagði á sig 160 kílómetra ökuferð til þess eins að ráðast á hann. Í tilkynningu frá AFLi segir að það sé með öllu ólíðandi að að starfsmenn félagsins séu í þeirri stöðu að ráðist sé á þá vegna starfa þeirra. Árásin verði því kærð. Þá hyggst félagið senda sýslumanni beiðni um að „rannsakað verði til hlítar hvort lög um atvinnuréttindi útlendinga, lög um skyldutryggingar lífeyrisréttinda, lög um slysatryggingar launafólks, lög um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum, skattalög svo önnur þau lög sem virða þarf við starfsmannahald séu haldin á veitingastaðnum Cafe Margreti við Breiðdalsvík." Ástæður þessa séu fullyrðingar vertsins um að starfsmenn AFLs stundi atvinnuróg. Með þessari rannsókn vonast félagið til að það skýrist hver er með rógburð. Horst vísaði vegna tungumálaörðugleika á eiginkonu sína, Margret Bekemeier, þegar Vísir leitaði viðbragða hans. Margrét sagði þau enga skoðun hafa á kærunni. Málinu væri lokið af þeirra hálfu. Þau væru Sverri reið, enda hefði hann farið með ósannindi og eyðilagt mannorð þeirra.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Fleiri fréttir Ljúfsárt að opna loks nýtt og stærra Kvennaathvarf Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot Sjá meira