Ofsaakstur undir áhrifum 12. júní 2008 16:48
Um kl. 13 í dag ætluðu lögreglumenn frá Akranesi að stöðva bifreið til að kanna með ástand ökumanns. Þeir voru þá staddir við Hvalfjarðargöng og sá sem stöðva átti ók áleiðis til Reykjavíkur. Þetta segir í tilkynningu frá lögreglunni á Akranesi. Enn fremur segir: „Hann sneri bifreið sinni við er hann varð lögreglunnar var og ók í átt til Akraness á miklum hraða. Bifreiðinni var veitt eftirför og náðist hraðamæling í eftirförinni þar sem ekið var með 180 km hraða. Önnur lögreglubifreið frá Akranesi kom þegar til aðstoðar auk þess sem bifreið úr Borgarnesi og bifhjól úr höfuðborginni voru örskammt undan og tóku þátt í að reyna að stöðva akstur bifreiðarinnar. Þegar sýnt var að ekki næðist að stöðva för bifreiðarinnar áður en hún kæmist inn á Akranes drógu lögreglumenn úr ökuhraða en sáu hvar bifreiðinni var ekið inn í bæinn og beygt til norðurs Esjubraut. Bifreiðin fannst svo mannlaus við Ægisbraut örskömmu síðar. Til ökumannsins sást í sjónhendingu við hús sem hann var talinn búa í og var ráðist til inngöngu í húsið eftir nokkra stund og fóru sérsveitarmenn sem komnir voru á vettvang inn í húsið á undan almennum lögreglumönnum. Var það gert í öryggisskyni en umræddur maður hefur að undanförnu verið í brotastarfsemi og iðulega verið vopnaður við handtökur. Hann reyndist hins vegar ekki vera í húsnæðinu og var hafin leit að honum í bænum. Bar sú leit árangur og var maðurinn handtekinn um kl 14:30. Tíu grömm af fíkniefnum fundust í vegkantinum skammt frá staðnum sem bifreiðin fannst og leikur grunur á því að maðurinn hafi kastað þeim út úr bifreiðinni. Hann gistir nú fangageymslur. Maðurinn er til viðbótar við framangreint grunaður um að hafa ekið bifreiðinni undir áhrifum fíkniefna."
Mest lesið Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Innlent Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Innlent Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Innlent Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Innlent Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Innlent Hafnaði úti í fjöru Innlent Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Erlent Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Innlent Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Erlent Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Innlent Fleiri fréttir Þyrlan sækir mann eftir hestaslys Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni Troðfullur strætó ók fram hjá Kristrúnu sem fékk ekki pláss Virtu ekki lokanir vegna Gleðigöngunnar Stelpurnar fái sambærilega upplifun og strákarnir Biðlar til leigjenda að áframselja ekki úr Góða hirðinum Beint streymi frá Gleðigöngunni Sakar rektor um að hindra upplýsingamiðlun til þjóðarinnar Óskhyggja að vona að afgerandi svar fáist þann 29. ágúst Óskhyggja að vonast eftir afgerandi svari og deilan harðnar 72 ár síðan síðast en 170 ár þar til næst Slökkvilið brást við tilkynningu um reyk Hafnaði úti í fjöru Klukkustundar löng röð í öryggisleitina: Á hlaupum í átt að hliðinu Endaði út af eftir framúrakstur Baudenbacher úthýst úr hátíðarsal háskólans Hátt í sjö hundruð komast ekki á kjörskrá í tæka tíð Sjö hundruð fá ekki að greiða atkvæði og bókstafirnir burt Ný fjarskiptakerfi séu viðkvæmari hvað varðar útbreiðslu Brotist inn á meðan húsfrúin var heima: „Lífið er aðeins verra eftir þetta“ Hægt að nálgast staðarspár fyrir almyrkvaslóðir á sérstöku spásvæði Heimabærinn borgar fyrir útför Gunnars að hluta Einkunnir verða birtar í tölustöfum í stað bókstafa Tilkynningum um innbrot fjölgar á ný ESB vill „skapandi lausnir“ fyrir íslenskan sjávarútveg Óvissa með sólmyrkvaveður Götulokanir vegna Gleðigöngunnar taka gildi í dag Stækkunarstjórinn boðar „skapandi lausnir“ fyrir Íslendinga Hommar komi verst út þegar kemur að mismunun launa Hvernig er myrkvinn þann 12. ágúst ólíkur þeim sem var árið 2015? Sjá meira