Landvernd vill endurskoða öll áform um Gjábakkaveg 4. maí 2008 10:36
Aðalfundur Landverndar hvetur til þess að öll áform Vegagerðarinnar um Gjábakkaveg verði tekin til endurskoðunar. Aðalfundurinn tekur undir áhyggjur menntamálaráðherra vegna áforma Vegagterðarinnar og hvetur þingmenn Suðurlands til að taka málið upp og finna lausn þar sem tekið er tilllit til vel rökstuddra athugasemda um áhrif áformaðra vegagerðar á Þingvallavatn, þjóðgarðinn á Þingvöllum og stöðu svæðisins á heimsminjaskrá UNESCO. Aðafundur Landverndar var haldinn í Norrænahúsinu um helgina. Í bréfi sem fundurinn sendi til þingmanna suðurkjördæmis og samgönguráðherra, segir m.a að Landvernd telji afar varhugavert að ráðast í fyrirhugaða vegagerð og vonast samtökin til þess að þingmenn kjördæmisins taki til sín ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, þar sem hún í svari sínu við fyrirspurn Álfleiðar Ingadóttur segir m.a: „...það er auðvitað ákveðið áhyggjuefni þegar verið er að framkvæma veglagningu í kringum þetta viðkvæma og merkilega svæði sem er merkilegt fyrir margra hluta sakir, ekki eingöngu út af menningarsögunni sem tengist staðnum heldur ekki síður út af þeirri vatnsvernd sem er á vatninu á Þingvallasvæðinu. Það verður að stíga afar varlega til jarðar og það mætti kannski leysa það vandamál eða viðfangsefni sem hv. þingmaður kemur hér inn á ef samgönguráðherra og þingmenn kjördæmisins mundu sammælast um að breyta veglagningunni." Í greinargerð Landverndar eru grundvallarforsendur fyrir vegagerðinni krufðar til mergjar og í ljós kemur að þörfin fyrir fyrirhugaðan Gjábakkaveg virðist nauðalítil. Vegurinn er hins vegar líklegur til að valda verulegum spjöllum. Í geinargerðinni er farið yfir þær leiðir og lausnir sem lagðar hafa verið til af hinum ýmsu aðilum. Þar kemur fram að fyrirhugaður kostur Vegagerðarinnar er alversti kosturinn, sökum gagnsleysis og umtalsverðra umhverfisspjalla auk þess sem vegurinn veikir stöðu þjóðgarðsins á heimsminjaskrá UNESCO. Gagnsemin, þó ósýnt sé um þörfina, er að leiðin er sú styðsta sem völ er á á milli Þingvalla og Laugarvatns.
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira