Innlent

Áfengisverð hækkar ekki á morgun

Áfengisverð mun ekki breytast á morgun, eftir því sem Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri ÁTVR, segir í samtali við Vísi.

Hækkun á áfengisgjaldi var samþykkt á Alþingi í kvöld og hækkar verð á léttvíni og bjór um nokkur prósent. Verð á sterku áfengi hækkar þó mest. Sé smellt á myndina hér að neðan má sjá hvernig hækkunin kemur út.



Athygli vekur að lögin taka strax gildi. Sigrún segir að þrátt fyrir þetta breytist verð ekki á morgun.



Alþingi samþykkti jafnframt í kvöld hækkun á bifreiðagjöldum og gjöldum af eldsneyti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×