„Nýtt tímabil óðaverðbólgu“ Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. maí 2008 19:29 Georg Páll Skúlason flytur mál sitt. MYND/Daníel Rúnarsson „
Við höfum orðið vitni að vaxandi misskiptingu í samfélaginu og birtingarmyndirnar eru margar," sagði Georg Páll Skúlason, formaður Félags bókagerðarmanna, í ræðu sem hann hélt á Ingólfstorgi í dag, á hátíðisdegi verkalýðsins. Georg sagði að verðbólga og slæmar horfur í efnahagslífinu hefðu gert ávinning nýundirritaðra kjarasamninga að engu og þegar væri ljóst að til endurskoðunar samninganna kæmi í byrjun næsta árs. „Stór hópur fólks á íslenskum vinnumarkaði þekkir ekki tveggja stafa verðbólgu. Við sem munum hvernig ástandið var hér á tímabili óðaverðbólgu, viljum ekki rifja það upp í verki. Með nýjustu verðlagsmælingu er það staðfest, að við erum komin inn í nýtt tímabil óðaverðbólgu," sagði Georg. Forðast óþægilega umræðu Hann varpaði fram þeirri spurningu hvort krónan hefði fallið vegna einhvers sem gerst hefði í útlöndum og enn fremur hvort stjórnvöld og Seðlabankinn hefðu getað gert eitthvað til að koma í veg fyrir fall krónunnar. „Nei góðir félagar. Það er ekkert nýtt að valdhafar sem vilja forðast óþægilega umræðu um staðreyndir bregðist svona við. Halda því fram að ástandið sé afleiðing umræðunnar um ástandið. Það er auðvitað ekkert annað en fráleitt," sagði Georg. Hann sagði verkalýðshreyfinguna hafa varað við því á undanförnum árum að þegar drægi úr þenslu í efnahagslífinu og á vinnumarkaði gæti lendingin orðið hörð. Stjórnvöldum hefði verið bent á hættumerkin en ráðamenn látið þau sem vind um eyrun þjóta. Afleiðingar þess upplifði þjóðin nú. Georg lauk máli sínu með því að margt hefði áunnist í kjara- og réttindamálum launafólks. Nefndi hann ný jafnréttislög og ákvæði þeirra um afnám launaleyndar. Klykkti hann út með þessum orðum: „Þess vegna komum við saman á fyrsta maí, ár eftir ár. Til að minna okkur á glæsta sigra og efla samstöðuna til að berjast fyrir nýjum. Hún er lykillinn að öllum okkar árangri. Félagar. Ég vil að lokum ítreka hamingjuóskir til ykkar í tilefni 1. maí. Munum að lykillinn að frekari árangri og landvinningum er hjá okkur sjálfum - fólginn í samstöðunni."
Mest lesið Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Innlent Vara við snörpum hviðum Veður Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Sjá meira