Innlent

Eldur í mannlausri íbúð

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Eldur kviknaði í íbúð húss við Bárugranda fyrir rúmri hálfri klukkustund. Var slökkvilið sent á staðinn þegar töluverður reykur sást á stigagangi.

Íbúðin var mannlaus og þurfti slökkvilið að brjóta sér leið inn. Slökkvistarf gekk vel og er slökkvilið nýfarið af vettvangi. Ekki er ljóst að svo búnu hver upptök eldsins voru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×