Erlent

Fjórtán látnir í sendiráðsárás

Lögreglubíll á vakt nærri sendiráði Bandaríkjanna í Sanaa í Jemen í morgun.
Lögreglubíll á vakt nærri sendiráði Bandaríkjanna í Sanaa í Jemen í morgun. MYND/AP

Fjórtán eru nú sagðir látnir eftir bílsprenguárás við á sendiráð Bandaríkjamanna í Jemen í morgun.

Sex hinna látnu eru jemenskir hermenn en fjórir eru úr röðum árásarmanna og þá léstust fjórir borgarar sem áttu leið fram hjá sendiráðinu. EFtir fyrstu sprenginguna við aðallhlið sendiráðsins sprungu nokkrar minni sprengjur og herma fregnir að komið hafi til átaka milli hermanna og árásarmanna eftir það.

Hópur að nafni Islamic Jihad segist bera ábyrgð á árásinni og hótaði frekari árásum annars staðar við Persaflóa eftir því sam Al-Arabiya fréttastofan greindi frá.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×