Bush neitaði að gefa grænt ljós á árás á Íran 25. september 2008 22:45 George W. Bush.
George Bush gerði Ísraelum grein fyrir því síðastliðið vor að Bandaríkin myndu ekki gefa grænt ljós á loftárásir Ísraela á Íran. Þetta hefur breska blaðið The Guardian eftir háttsettum evrópskum diplómata. Í greininni er sagt að Ísraelar hafi íhugað "alvarlega" að gera árásir á svæði í Íran þar sem talið er að þeir séu að vinna að kjarnorkutilraunum. George Bush mun hins vegar hafa gert Ehud Olmert, þáverandi forsætisráðherra Ísrael, grein fyrir því að hann myndi ekki gefa grænt ljós á slíkar aðgerðir. Hann er einnig sagður hafa ýjað að því að sú afstaða myndi ekki breytast á meðan hann væri við völd í Hvíta húsinu. Þeir Bush og Olmert eru sagðir hafa rætt þessi mál undir fjögur augu þann 14. maí síðastliðinn þegar Bush var viðstaddur hátíðarhöld í Ísrael til þess að minnast þess að 60 ár voru liðin frá stofnun ríkisins. Heimildarmenn blaðsins eru sagðir vinna fyrir evrópskan þjóðarleiðtoga sem ekki er nefndur á nafn. Sá mun hafa hitt Olmert stuttu eftir fund hans við Bush þar sem Olmert sagði greindi honum frá afstöðu Bush. Leiðtoginn á síðan að hafa sagt undirmönnum sínum frá samtalinu. Afstaða Bush í málinu er sögð hafa verið byggð á tveimur þáttum. Annars vegar ótta við svar Írana við árasunum, sem myndi að öllum líkindum byggja á árásum á bandarískt herlið í mið-austurlöndum. Hins vegar eru Bandaríkjamenn sagðir hafa haft áhyggjur af því að Ísraelum myndi mistakast að gera út um kjarnorkudrauma Írana í einni lotu og óhugsandi væri annað en að ítrekaðar árásir á landið myndu leiða til allsherjarstríðs.
Mest lesið Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Erlent Fleiri fréttir „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sjá meira