Hart deilt á hitafundi í Frjálslynda flokknum 25. september 2008 21:45 Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokksins. „
Ég verð að segja alveg eins og er að mér er nóg boðið," sagði Jón Magnússon, þingmaður Frjálslynda flokkinn. Hann gagnrýndi harðlega innra starf Frjálslynda flokksins á miklum hitafundi sem fram fór á Grand Hótel nú í kvöld. Jón Magnússon, þingmaður flokksins, og Guðjón Arnar Kristjánsson formaður héldu framsögur Gagnrýnir mannaráðningar á skrifstofu flokksins Jón sagði að flokkurinn yrði að ná góðri stöðu í Reykjavík og suð-vestur kjördæmi til að ná árangri. Flokksfélagar þyrftu að taka tillit til þess. Til þess að svo mætti vera þyrfti að hafa öflugt innra starf í Reykjavík. Jón sagði jafnframt að þegar félög Frjálslynda flokksins í Reykjavík og borgarmálafélag hefðu verið stofnuð hefði flokksforystan reynt að vinna gegn stofnun þeirra. Þá sagði Jón að deilur sem hefðu komið upp fyrst eftir síðustu kosningar hefðu fyrst og fremst snúist um mannaráðningar á skrifstofu flokksins. Hann gagnrýnir aðferðafræði við mannaráðningar og segir eðlilegt að hann sem þingmaður flokksins hefði átt að koma að þeim. Kvartar undan aðdróttunum Jón Magnússon sagði að allt frá því að hann og aðrir félagar úr Nýju afli hefðu gengið í Frjálslynda flokkinn hefðu þeir þurft að þola ágjöf frá ýmsum úr flokknum. Þá sagði Jón að trúnaðarbrestur hefði komið upp gagnvart sér. Hann kvartaði yfir því að aðdróttunum sem hann og fleiri hefðu orðið fyrir vegna hugmynda þeirra í málefnum innflytjenda. Þær aðdróttanir hefðu meðal annars komið frá Kristni H. Gunnarssyni, en jafnframt frá launuðum starfsmönnum flokksins. Hann sagði að reynt hefði verið að ýfa upp fjölda mála sem ágreiningur hefði verið um í flokknum og sagði að sér væri nóg boðið. Hann vildi ekki standa í slíkri orrahríð. Hann sagðist telja að hægt væri að gera flokkinn að góðri, vígreifri baráttusveit, en til þess þyrfti flokkurinn að standa saman. Ekki deilt um málefni Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður flokksins, sagði að á þeim 10 árum sem flokkurinn hefði starfað hefði oft komið upp átök á milli manna. Þessi átök hefðu leitt til þess að fólk hefði yfirgefið flokkinn í fússi. Þar á meðal væru fyrrverandi varaformaður flokksins, fyrrverandi þingmaður hefði farið í Sjálfstæðisflokkinn og sömu sögu væri að segja af fyrrverandi bæjarfulltrúa flokksins. Fyrrverandi formaður flokksins og fyrrverandi framkvæmdastjóri hefðu sömuleiðis horfið á braut. Guðjón Arnar tók hins vegar skýrt fram að á þeim tíma sem flokkurinn hefði starfað hefði ekki verið málefnalegur ágreiningur á milli manna. Sá ágreiningur sem hefði komið upp hefði einungis snúist um völd og skiptingu embætta.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira