Alltaf vont að missa gott fólk að ósekju 25. september 2008 09:55 MYND/GVA
Steinunn Valdís Óskarsdóttir, varaformaður þingflokks Samfylkingarinnar, segir óheppilegt í hvað farveg málefni lögreglunnar á Suðurnesjum eru komin. Eins og kunnugt er óskaði Jóhann Benediktsson lögreglustjóri eftir því að fá að láta af störfum um næstu mánaðamót og það hafa þrír aðrir lykilstarfsmenn embættisins einnig gert. Jóhann bar við algjörum trúnaðarbresti milli sín og Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra varðandi framtíð lögregluembættisins á Suðurnesjum og þá sakar Eyjólfur Kristjánsson, staðgengill Jóhanns, ráðherrann um einelti gangvart Jóhanni og lögregluembættinu. Steinunn Valdís segir í samtali við Vísi að óheppilegt sé í hvaða farveg málið sé komið. Hún bendir á að Lúðvík Bergvinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hafi vakið athygli á ýmsum málum sem tengist embættinu og þá segist hún sem nefndarmaður í fjárlaganefnd hafa fengið fulltrúa lögregluembættisins á Suðurnesjum á sinn fund til þess að ræða fjárhag þess. „Ég tel ljóst að þeir hafi ekki mætt þeim skilningi sem maður myndi ætla hjá ráðuneytinu. Samskiptin og málin hafa farið í mjög óheppilegan farveg og það er ekki til þess að auka traust manna," segir Steinunn Valdís. Að öðru leyti verði Björn Bjarnason að svara fyrir sínar gjörðir. Aðspurð hvort þróun mála muni skaða embættið segir Steinunn að það geri það örugglega tímabundið. „Eyjólfur Kristjánsson, staðgengill Jóhanns, sagði í fréttum í gær að það kæmi maður í manns stað en það er alltaf vont fyrir stofnanir hins opinbera að missa gott fólk algerlega að ósekju," segir Steinunn. Fjórir lykilstarfsmenn á Suðurnesjum hafi sagt upp sem sýni að deilurnar séu ekki bundnar við persónu Jóhanns. Björn Bjarnason hefur boðað breytingar á lögregluembættinu á Suðurnesjum þar sem skilja á á milli löggæslu, tollgæslu og flugverndar og færa þau mál undir þrjú ráðuneyti. Spurð hvort stuðningur sé við þær breytingar Björns í þingflokki Samfylkingarinnar segist Steinunn ekki hafa fengið kynningu á þeim og því geti hún ekki tekið afstöðu til þeirra.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Innlent Fleiri fréttir „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Sjá meira