Innlent

Vill afnema leynd á orkuverði til Norðuráls

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir.
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur afgreiddi í dag samning á orkusölu til Norðuráls vegna álvers í Helguvík. Svandís Svavarsdóttir, fulltrúi VG, í stjórninni vill að verðið á orkunni verði gert opinbert, en tillögu þess efnis var vísað frá á stjórnafundinum í morgun. Svandís yfirgaf þá fundinn eftir að hafa lagt fram bókun um málið.

Þar sem tillaga um að aflétta leynd þeirri sem hvílir á orkuverðinu hefur verið vísað frá kýs ég að víkja af fundinum meðan umfjöllun um verðið fer fram. Mér er gert að halda hluta samningsins leyndum fyrir Reykvíkingum sem ég er fulltrúi fyrir. Undir slíka afarkosti get ég ekki gengist. Fulltrúi Vinstri grænna telur afdráttarlaust að almenningur eigi lögvarða kröfu á því að fá verðið uppgefið þar sem í þeim upplýsingum liggja miklir hagsmunir almennings. Jafnframt mun fulltrúinn áfram berjast fyrir því að raforkuverð til stóriðju verði gert opinbert," sagði Svandís í bókuninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×