Innlent

Konur algengara slúðurefni en karlar

Kristín Ása Einarsdóttir.
Kristín Ása Einarsdóttir.

Konur eru umfjöllunarefni í 22,5% frétta sem birtast á fréttavefjunum mbl.is og visir.is en karlar í 77,5%. Þetta sýna niðurstöður rannsóknar Kristínar Ásu Einarsdóttur, sem skrifaði BA ritgerð í félagsfræði um kynjahlutfall og birtingarmyndir kynjanna í vefmiðlum. Samkvæmt rannsókninni birtast konur oftast í hlutverki dægurstjarna undir efnisflokknum slúður en karlar eru fyrirferðarmestir í efnisflokknum íþróttir.

Þegar efnisflokkarnir slúður og skemmtiefni/afþreying voru teknir út hjá báðum kynjum er kynjahlutfallið á mbl.is og Vísi 85,8% karlar og 14,2% konur. Kynjahlutfallið á mbl.is er jafnara en á Vísi eða 72% karlar á móti 28% konum en munurinn á Vísi er 82% karlar og 18% konur.





Karlar eru mun oftar umfjöllunarefni fréttavefjanna eins og sést á þessari mynd.


Kristín segir í samtali við Vísi að niðurstöður sínar séu að vissu leyti sambærilegar við rannsóknir sem hafi verið gerðar á öðrum tegundum fréttamiðla. Til dæmis hafi rannsókn á kynjahlutföllum í Fréttablaðinu, sem gerð var árið 2005, leitt í ljós að kynjahlutfallið var 73% karlar á móti 27% konum.

Þá segir Kristín jafnframt að niðurstöðurnar séu umhugsunarverðar að því leyti til að þær endurspegli ekki stöðuna í samfélaginu almennt. Kynjaskiptin í fréttaflutningi sé til dæmis mun ójafnari heldur en bæði kynjaskiptingin er á Alþingi og á meðal stjórnenda helstu fyrirtækja landsins þegar tekið er tillit til efnisflokka.

Rannsókn Kristínar var gerð í maí á þessu ári og var gögnum safnað allan mánuðinn.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×