Innlent

Auðveldara að flokka sorpið í framtíðinni

Grenndargámakerfi SORPU hefur verið breytt á þann veg að flokkun sorps hefur verið gerð auðveldari. Frá áramótum verður blái gámurinn nýttur undir pappír og pappírsumbúðir og sá græni undir plastumbúðir.

Í tilkynningu frá SORPU bs kemur fram að aukin tækni í flokkunarmálum geri nú kleift að endurvinna pappír og pappírsumbúðir á sama hátt. Móttökuaðili SORPU fyrir endurvinnanlegan pappír í Svíþjóð getur unnið pappírsefnið enn betur en áður hefur þekkst, flokkað það frekar og endurunnið í nýjar vörur.

„Í ljósi þess hefur SORPA ákveðið að auka þjónustu sína enn frekar og auðvelda fólki flokkun með því að í samnýta bláa grenndargáminn undir bæði pappír og pappírsumbúðir og taka á móti plastumbúðum í grænan grenndargám. Plastumbúðirnar verða ýmist nýttar til orkuvinnslu eða til endurnýtingar bæði hérlendis og erlendis. Við viljum hvetja íbúa höfuðborgarsvæðsins að taka vel á móti aukinni þjónustu í flokkun og nýta sér grenndargámakerfið enn betur en áður," segir í tilkynningu.

Grenndarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu eru um 80 talsins og á hverri stöð eru tveir gámar. Nú er hægt að nýta ferðina enn betur og hafa með sér allar plastumbúðir og skila í græna grenndargáminn og pappír og pappírsumbúðir í bláa gáminn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×