Grétar líklega ekki með gegn Liechtenstein Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. október 2007 12:10 Grétar Rafn fær meðhöndlun frá lækni landsliðsins á laugardaginn. Mynd/Pjetur
Bjarni Jóhannsson aðstoðarlandsliðsþjálfari segir það afar ólíklegt að Grétar Rafn Steinsson verði með íslenska landsliðinu gegn Liechtenstein á miðvikudag. „Hann fékk mikið högg og bólgnaði mjög mikið," sagði Bjarni. „Hann er þó með okkur og er í meðhöndlun en læknaliði okkar líst ekki á blikuna." Þá er Veigar Páll Gunnarsson farinn heim til Noregs en hann meiddist á æfingu á föstudaginn og var ekki í leikmannahópnum gegn Lettum á laugardag. „Þessi 22 manna leikmannahópur er nú orðinn að tuttugu, í rauninni," sagði Bjarni. Það er þó bót í máli að Hermann Hreiðarsson er nú orðinn gjaldgengur á nýjan leik en hann tók út leikbann í leiknum gegn Lettum. Auk hans og Veigars voru þeir Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Ólafur Örn Bjarnason utan leikmannahópsins um helgina. Landsliðið er nú statt í Lundúnum þar sem það gisti í nótt. Seinni partinn flýgur það til Zürich þaðan sem það keyrir til Vaduz í Liechtenstein. „Við ákváðum að gera þetta svona því ef við hefðum ætlað að fara til Liechtenstein í einum rykk hefðum við þurft að vakna klukkan fjögur í morgun og værum svo ekki komnir á áfangastað fyrr en klukkan hálf níu í kvöld." Liðið æfði í World Class í gær og flaug svo seinni partinn til Lundúna. Í morgun æfði liðið á æfingasvæði Queens Park Rangers, sem er í námunda við flugvöllinn þaðan sem landsliðið flýgur í dag.
Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Enski boltinn Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Enski boltinn Conor McGregor segist vera sá besti í sögunni og ætlar að sanna það Sport Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Fótbolti Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði Fótbolti Fleiri fréttir Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Konurnar fá helminginn af verðlaunafé bandaríska karlalandsliðsins Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Skoraði í styrktarleik fyrir móður sína Justin Bieber kemur fram í hálfleik á úrslitaleik HM Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Norska landsliðið flúði hótelið sitt Henderson tjáir sig í fyrsta sinn eftir fallið vandræðalega Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Segir að læknir norska landsliðsins sé mjög upptekinn Lýsandinn, Tevez og Agüero sturluðust þegar Messi jafnaði FIFA hafnaði áfrýjun Frakka Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Rannsaka kynþáttahatur argentínskra stuðningsmanna Egyptar vilja að dómararnir verði sendir heim Ungu strákar Blika að leggja lóð sín á vogarskálarnar Styrktarleikur á Selfossi þegar vinaliðin mætast í fyrsta sinn Sjáðu sigurmark Víkinga og meiðslin sem skyggðu á gleðina Blikar fá Hlyn heim frá Svíþjóð Arnar tók upp hanskann fyrir FIFA: „Þetta virkar ekki þannig“ Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid „Hreinlega spilling í gangi ítrekað“ Evrópuþingmenn kalla eftir rannsókn á Infantino Hildur til Newcastle Maður dagsins á HM: Gat valið um fjórar íþróttir sem táningur Segir að það sé verið að dæma í hag Argentínu á HM FIFA styður dómarann sem Trump sagði að væri grunsamlegur Veikindi herja á norska liðið Forsætisráðherra Kanada óskaði eftir því að deila Haaland á næsta HM Sjá meira