Lífið

Vilja Britney á brott

Bandaríkjamenn virðast vera orðnir þreyttir á að lesa um hárkollur og áfengismeðferðir Britney Spears, sem toppar listann.
Bandaríkjamenn virðast vera orðnir þreyttir á að lesa um hárkollur og áfengismeðferðir Britney Spears, sem toppar listann.

Britney, Paris og Lindsay mega fara að hvíla sig að mati bandarísku þjóðarinnar. Í nýrri könnun komast þær allar á lista yfir þær stjörnur sem fjölmiðlar ytra veita of mikla, og óverðskuldaða, athygli.

Það er fyrirtækið E-Poll Marketing sem hefur tekið saman listann, sem er byggður á viðamikilli skoðanakönnun. Það þarf vart að undrast að poppprinsessan Britney Spears trónar á toppnum, en 72 prósent svarenda töldu hana hafa hlotið allt of mikla fjölmiðlaathygli miðað við afrek. Enda getur klipping, þó um snoðun sé að ræða, hárkollu- og brjóstahaldaraval varla talist til mikilla afreka. Fyrrverandi eiginmaður Spears kemur sterkur inn í þriðja sætið, en á milli þeirra hjúa er hin margumrædda Paris Hilton, sem 68 prósent telja hljóta of mikla fjölmiðlaathygli.

Tom Cruise fylgir fast á hæla Federline, en nýjar fréttir og bölspár af hjónabandi hans og Katie Holmes virðast berast á fimm mínútna fresti. 48 prósent svarenda töldu Lindsay Lohan fá allt of mikla umfjöllun í bandarískum fjölmiðlum, en stúlkan sú á heiðurinn af hverri fyrirsögninni á fætur annarri. Nicole Richie toppar Lohan þó með fjögurra prósenta mun.

Lestina á topp-tíu listanum reka hinn merkilegi Michael Jackson, Donald Trump hinn hárprúði, ruðningsstjarnan Terrell Owens og Howard K. Stern, syrgjandi ástmaður Önnu Nicole Smith.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.