Elstu hús Reykjavíkur 19. apríl 2007 09:00
Á reitnum sem afmarkast af Pósthússtræti, Austurstræti, Lækjargötu og Skólabrú eru mörg sögufræg hús. Húsaröðin við Lækjargötu 2, Austurstræti 20 og 22 er ein elsta varðveitta götumynd borgarinnar og með helstu kennileitum bæjarins. Austurstræti 20 Eitt elsta hús bæjarins að stofninum til frá 1805. Húsið var embættisbústaður sýslumanns og flutt inn tilhöggvið frá Svíþjóð. Veitingastaðirnir Hressingarskálinn, Ömmuhús og Gott í gogginn eru í húsinu sem er friðað. Austurstræti 22 Byggt á árunum 1801 til 1802. Húsið var upphaflega bústaður stiftamtmanns en síðar var prestaskóli í húsinu. Húsið er friðað og nú er þar veitingastaðurinn Pravda. Austurstræti 22 Söluturninn Fröken Reykjavík. Lækjargata 2 Með eldri húsum bæjarins, reist árið 1852 og að líkindum fyrsta hornhúsið sem reist var í Reykjavík. Sigfús Eymundsson ljósmyndari átti húsið og var það jafnan kallað Eymundsenhús. Í dag eru í húsinu veitingastaðirnir Café Ópera, Café Rósenberg og Kebabhúsið. Lagt hefur verið til að húsið verði friðað. Lækjargata 2a Hér stóð áður Nýja bíó, byggt árið 1920, fyrsta kvikmyndahús landsins. Húsið skemmdist afar illa í bruna árið 1998 og var rifið. Nýtt hús var reist á grunni þess árið 2000. Þar er verslunin Iða. Lækjargata 4 Hér stóð áður tvíflyft timburhús sem var flutt í Árbæjarsafn árið 1988. Nú er þar nýlegt íbúðar- og verslunarhúsnæði. Pósthússtræti 11 Hótel Borg, byggt árið 1930 og teiknað af Guðjóni Samúelssyni. Húsið er friðað. Pósthússtræti 9 Skrifstofuhúsnæði. Kaffihúsið Kaffibrennslan. Pósthússtræti 7/Austurstræti 16 Stórhýsið á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis var byggt af á árunum 1916 til 1917. Áður stóð verslunarhús á lóðinni sem brann árið 1915. Í dag eru skrifstofur og veitingastaður í húsinu. Austurstræti 18 Verslunarhúsnæði. Hér er bókabúðin Eymundsson til húsa.
Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent Þreifa fyrir sér þrátt fyrir boðaðað lokun Hormússunds Erlent Fleiri fréttir „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Sjá meira