Togstreitan á milli Íslendinga og Dana er sprenghlægileg 13. júlí 2007 09:45 Lars von Trier segir í viðtalinu að það hafi ekki verið auðvelt að vinna með Björk.
Leikstjórinn Lars von Trier ræðir um togstreitu milli Dana og Íslendinga í nýju viðtali. Hann segir að spennan á milli þjóðanna geti skapað vandamál. Atriðin þar sem togstreitan á milli Íslendinga og Dana fær að njóta sín best eru fyndnustu atriðin í nýjustu mynd Lars von Triers, Direktören af det hele, að því er danski leikstjórinn segir sjálfur í nýju viðtali við kanadíska dagblaðið Globe and Mail. Von Trier segir enn fremur að þessi atriði hafi uppskorið mestu hlátrasköllinn frá áhorfendum í þau skipti sem myndin hefur verið sýnd í bíóhúsum. Fornar og nýjar valdadeilur á milli Íslendinga og Dana eru helsta umfjöllunarefni myndarinnar en hún fjallar um tilraun Dana til að fá íslenska auðkýfinga til að kaupa verðlaust tölvufyrirtæki. Friðrik Þór Friðriksson og Benedikt Erlingsson eru sem kunnugt er í stórum hlutverkum í myndinni. „Spennan á milli þessara þjóða getur skapað vandamál,“ segir Trier í viðtalinu og vísar sem dæmi í samstarf sitt við Björk í myndinni Dancer in the Dark, en blaðamaður bætir við að íslenska söngkonan sé sérvitur poppstjarna. „Ooooo, það var ekki auðvelt,“ segir Trier í viðtalinu og hristir hausinn með bros á vör þegar hann lýsir samstarfinu við Björk. Von Trier stiklar á stóru í viðtalinu og segir meðal annars frá því að hann hyggist gera hryllingsmynd á næstunni. Þá segir leikstjórinn að hann hafi misst trúna á kvikmyndahátíðinni í Cannes, en Direktören af det hele er fyrsta myndin sem hann frumsýnir ekki í Cannes. „Hátíðin hefur ekki svo mikla þýðingu lengur fyrir mig. Það er mikið álag sem fylgir því að vera í Cannes og einu sinni fór ég í 150 viðtöl sama daginn. Það er bilun. Kvikmyndir fá ekki rétta umfjöllun með svo stuttum viðtölum,“ segir Von Trier.
Mest lesið Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Lífið Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Lífið Jóhanna Guðrún gæsuð Lífið Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Lífið Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Lífið Valerie Mahaffey er látin Lífið Sérhönnuð krem frá O´Keeffe´s fyrir þurra og sprungna húð Lífið kynningar Vilja stimpla sig inn með stæl Lífið Syngur og safnar fé til rannsókna á ættarsjúkdómi Menning „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Á bólakafi að skoða fiska á Sjómannadaginn Birta Líf og Gunnar Patrik gáfu dótturinni nafn Race Across the World-keppandi látinn eftir bílveltu Valerie Mahaffey er látin Krakkatían: Lilo & Stitch, Skólahreysti og útskriftir Einar á Söndru Bullock mikið að þakka Á loks réttinn að öllum plötunum sínum „Ég fæ ekki á broddinn nema Knicks vinni“ Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn Fréttatía vikunnar: Clint Eastwood, útivistarsvæði og óvenjuleg lending Matti Matt nú meistari Mikið um dýrðir á þjóðardegi Íslands í Japan Sætustu systur landsins skáluðu fyrir Birni Hamingjusöm pör noti mikið samanburð við aðra Í Love Island eftir lífshættulegt slys Sydney Sweeney selur sápu úr skítugu baðvatni sínu Jóhanna Guðrún gæsuð Brad Pitt tjáir sig í fyrsta skipti um skilnaðinn „Þetta tekur svo svakalega á sálartetrið“ Sjarmerandi miðbæjaríbúð listapars Heillaði að læra hefðirnar í Húsó Steldu senunni í veislu sumarsins Hefur lést um níu kíló eftir hjartaáfallið: „Maður vaknar svolítið við þetta“ Dreymir stanslaust kynlíf með öðru fólki en makanum Skvísurnar tóku yfir klúbbinn Tónlistarbransadrottning selur miðbæjarslotið Handlagin hjón selja tvær eignir í sögulegu farandshúsi Kjalar ástfanginn í tvö ár Diddú tíu þúsundasti gestur fótboltabullnanna Sú elsta í sögu Ungfrú Ísland glímdi við átröskun og varð minnst 39 kíló Sjá meira