Samþykkt að selja hlut Hafnarfjarðar í HS til Orkuveitunnar 18. desember 2007 16:01 MYND/Valli
Bæjarstjórn Hafnarfjarðarbæjar samþykkti á fundi sínum í dag að selja nær allan hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja til Orkuveitu Reykjavíkur og leita eftir því að fá hlut í Orkuveitunni sem hluta af greiðslu fyrir hlutinn. Ákveðið var að á bæjarráðsfundi í gær að vísa tillögu þessa efnis frá bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna til bæjarstjórnar og greiddi hún atkvæði um það í dag. Hún var samþykkt með átta atkvæðum Samfylkingar og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum sjálfstæðismanna. Hafnarfjarðarbær á 15 prósenta hlut í Hitaveitu Suðurnesja, sem metinn er á um 15 milljarða króna, og er ætlunin að selja allt að 95 prósent þess hlutar. Þá gerir tillagan ráð fyrir að teknar verði upp viðræður við OR um möguleg kaup á hlut í félaginu og mun starfshópur skipaður oddvitum þeirra stjórnmálaflokka sem sæti eiga í bæjarstjórn Hafnarfjarðar standa að þeim viðræðum. Gert er ráð fyrir að samkomulag við OR liggi fyrir fyrir lok febrúar á næsta ári. Salan er í samræmi við viljayfirlýsingu milli Hafnarfjarðarbæjar og Orkuveitu Reykjavíkur sem gerð var í byrjun júlí varðandi sölu á eignarhlut bæjarfélagsins í Hitaveitu Suðurnesja. Í tillögunni er bent á að Hafnarfjarðarbær verður þriðjungshluthafi í Suðurlindum ohf. ásamt Grindavík og Sveitarfélaginu Vogum, en formlegur stofnfundur félagsins verður haldinn næstkomandi fimmtudag. Meginverkefni þess félags er að standa vörð um sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna og íbúa þeirra varðandi náttúrauðlindir og mögulega nýtingu orkuauðlinda innan lögsagnarumdæma sveitarfélaganna Sjálfstæðismenn lögðu einnig fram tillögu í málinu og vildu selja Orkuveitunni allan hlutinn í Hitaveitu Suðurnesja og nota fjármuni til að greiða niður skuldir og skuldbindingar Hafnarfjarðarbæjar. Lækkun á skuldum bæjarins og vaxtabyrði verði svo notað til að lækka útsvar, fasteignagjöld og aðrar álögur á bæjarbúa. Tillaga sjálfstæðismanna var felld. Óljóst hvað á að selja stóran hlut Á bæjarstjórnarfundinum gagnrýndu sjálfstæðismenn að ekki kæmi fram í tillögu meirihlutans hversu stóran hlut í Hitaveitunni ætti að selja, aðeins að ætlunin væri að selja allt að 95 prósent. Þá lægi ekki fyrir hversu stóran hlut ætti að kaupa í Orkuveitu Reykjavíkur. Enn væri ekkert sagt um hvernig ætti að ráðstafa afganginum af söluandvirði hlutarins í Hitaveitunni. Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, benti hins vegar á að fyrsta verk væri að reyna að ná samkomulagi við Orkuveituna og að því kæmu allir flokkar í bæjarstjórn. Þegar og ef samningur lægi fyrir yrðu greidd um hann atkvæði í bæjarstjórn. Í framhaldinu yrði svo ákveðið hvernig fjármunum yrði ráðstafað. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, fulltrúi Vinstri - grænna, sagði stefnu flokksins og Samfylkingarinnar skýra og kveðið væri á um fimm skref í málinu. Í dag lægju hins vegar ekki fyrir upplýsingar um það hvað Hafnarfjörður þyrfti að tryggja sér mikinn hlut í Orkuveitunni til þess að fá áheyrnarfulltrúa eða fullgildan fulltrúa eins og hún vildi sjálf.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Hormússundið opið á ný Erlent Fleiri fréttir „Aðild að Evrópusambandinu myndi skapa stöðugleika“ Olíuverð, starfslok og vinsældir hristibretta Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Sjá meira