Blóðugi maðurinn var stunginn á Hverfisgötu 15. desember 2007 18:36
Blóðugi maðurinn sem Vísir hefur fjallað um í dag var stunginn í lærið í íbúðarhúsi við Hverfisgötu. Lögreglan leitaði mannsins um stund en hann hafði yfirgefið staðinn og gengið sem leið lá niður að Skúlagötu. Það var um klukkan tvö í dag sem lögreglan fékk tilkynningu um að alblóðugur maður væri á gangi á Hverfisgötu. Maðurinn gekk ofan af Hverfisgötu, niður Vitastíginn, niður á Skúlagötu og inn í verslun 11-11 þar sem hann hné niður. Starfsmenn verslunarinnar hringdu á sjúkrabíl sem flutti manninn í skyndi á sjúkrahús. Hann hafði þá skilið eftir sig blóðuga slóð og var orðinn mjög máttfarinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu þá var maðurinn gestur í húsi við Hverfisgötu þegar árásin átti sér stað. Mjög óljóst er hvað gerðist og er rannsókn málsins á frumstigi. Enginn hefur verið handtekinn í tengslum við það og skýrsla af manninum verður tekin síðar í kvöld eða á morgun. Loka þurfti Vitastíg um tíma á meðan Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hreinsaði upp blóðblettina. Hjá vakthafandi lækni á Slysa- og bráðadeild Landspítalans fengust þær upplýsingar nú rétt fyrir fréttir að maðurinn hefði verið útskrifaður af spítalanum á sjötta tímanum, eftir að búið var að gera að sárum hans. Hann var með nokkuð djúpan skurð á læri en ætti að jafna sig að fullu. Lögreglan býst við að yfirheyra manninn í kvöld. Sjá einnig:Blóði drifin slóð í miðbænumBlóðugi maðurinn birtist hjá ókunnugum
Mest lesið Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Innlent Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Erlent Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Innlent Haraldur Briem er látinn Innlent Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Erlent Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Erlent Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Innlent Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Innlent Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Erlent Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Innlent Fleiri fréttir Haraldur Briem er látinn Fjórir handteknir í aðgerðunum í Gnoðarvogi Sérsveitin kölluð út: Fjöldi handtekinn eftir húsleit í Gnoðarvogi Vara við eldislax í Haukadalsá Erlendir hópar komi til Íslands í skamman tíma til að hnupla úr verslunum Líkamsræktarstöðin í Laugum rýmd: Reykurinn reyndist vera gufa Tilkynnt um sjónskerðingu og sjálfsvígshugsanir eftir inntöku þyngdarstjórnunarlyfja Gagnrýni á fegurðarsamkeppnir sé ekki niðurlæging í garð kvenna Líkamsræktarstöð World Class í Laugum rýmd vegna vatnsleka Skuggahliðar þyngdarstjórnunarlyfja og útskúfun vegna BDSM Ámálaða merkið þótti ekki nógu flott Slasaður eftir að tveir bílar skullu saman á hættulegum gatnamótum við Skógafoss Vísað úr landi eftir ólöglega dvöl: Togaði í hár konunnar, sparkaði í hana og mölvaði síma hennar Guðbjörg ráðin skólastjóri í tólfta grunnskóla Hafnarfjarðar Skyldleiki við lögregluþjón þvældist fyrir Stærðar borgarísjaki sást vestur af Látrabjargi „Hefði ég ekki verið kominn af stað væri ég ekki að tala við þig núna“ Kærumál seinkar verklokum við brúagerð í Gufudalssveit Bjóða þeim sem skera niður regnbogafána í heimsókn Valdar strætóleiðir ganga oftar og lengur Hafi ekki forsendur til að efast um ákvörðun Sjúkratrygginga Rannsókn á „bíræfnum“ þjófnaði á viðkvæmu stigi Niðurgreiðsla sálfræðiþjónustu verði tryggð Niðurgreidd sálfræðiþjónusta, tollar á lyf og hitamet Óprúttnir aðilar hóta rofinni rafmagnstengingu berist greiðsla ekki strax „Ég hef engar vísbendingar fengið um að þetta sé að gerast“ Allir gangi hamingjusamir úr nýjustu sundlaug landsins Ástandið á Gasa: 42 prósent telja að Íslendingar ættu að beita sér meira „Stærsti höfundaréttarþjófnaður sögunnar“: Skora á íslensk stjórnvöld að feta í fótspor Dana Teiknaði hakakross á hurðina hjá nágrannanum Sjá meira